Gosfélagið, sem tók yfir sölu og dreifingu á Klaka og Djúsí klaka síðastliðið haust, vinnur nú að því að setja upp tvær nýjar framleiðslulínur í drykkjarvörur fyrirtækisins með nýjum vélum sem komu til landsins fyrir helgi. Stefnt er að því að framleiðsla á Klaka í plastflöskum hefjist um mánaðamótin maí og júní en framleiðsla á Klaka í dós með nýju vélunum hefst svo mánuði síðar. Það eru þeir Brynjar Freyr Valsteinsson og Kristján Elvar Guðlaugsson sem standa að baki Gosfélaginu ásamt fjárfestunum Ásgeiri Johansen og Lofti Bjarna Gíslasyni. Brynjar Freyr og Kristján Elvar þekkja vel til drykkjaframleiðslu á Íslandi og eru með yfir 20 ára reynslu á dagvörumarkaði. Sjá einnig Gosfélagið tekur yfir sölu og dreifingu á Klaka Brynjar Freyr Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir í samtali við Viðskiptablaðið að tveggja lítra plastflöskur Klaka hafi verið uppseldar undanfarið en nú styttist í framleiðslu á nýjum og umhverfisvænni plastflöskum. „Klaki í plasti er ekki í framleiðslu eins og er en dósirnar eru það. Þetta verður því framleiðsla fyrir bæði plastflöskur og dósir og sjáum við fram á að afkastagetan verði um 70 milljónir lítra á ári.“ Félagið er einnig á lokametrunum við að koma upp 2.000 fermetra aðstöðu í Hafnarfirði. Vatnið sem Gosfélagið notast við kemur einnig úr Kaldárbotnum, sem eru, samkvæmt tilkynningu, með hreinustu vatnslindum landsins. „Við ætlum að verða leiðandi í framleiðslu óáfengra drykkja. Klaki hefur notið vaxandi vinsælda meðal Íslendinga undanfarin ár enda drykkirnir ferskir og svalandi. Framleiðslan á Klaka er fyrsta skrefið en í framtíðinni stefnum við á að auka við hana og kynna til sögunnar nýja og spennandi drykki,“ segir Brynjar.
This article is not a security vulnerability disclosure; it is a business news piece detailing the Gosfélagið company's expansion of production capacity for the Klaka beverage brand, including new bottling lines and a facility in Hafnarfjörður.