Hagar hf. og dótturfélög þess, Bónus og Olís, hafa staðfest áform um uppbyggingu nýrrar starfsemi í Þorlákshöfn á næstu misserum. Fyrirhugað er að opna nýja Bónus-matvöruverslun og Olís-sjálfsafgreiðslustöð á svæðinu. Bónus mun opna nýja matvöruverslun miðsvæðis í Ölfusi, nærri nýrri íbúabyggð við gatnamót Ölfusbrautar og Hafnarvegar. „Hjá Högum sjáum við mikil tækifæri í að þjóna ört vaxandi hópi íbúa bæjarins og nágrannasveita um dagvöru og eldsneyti í heimabyggð og að sama skapi erum við spennt fyrir því að styðja við farsæla uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga. Sjá einnig Hörð samkeppni um lóðir og íbúðir í Þorlákshöfn Sveitarfélagið Ölfus hefur verið í örum vexti á undanförnum árum og hefur íbúum fjölgað um tæp 30% frá árinu 2018. Samhliða þessari þróun hefur atvinnustarfsemi á svæðinu aukist verulega og hafnarstarfsemi styrkst en nú þegar eru um 320 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn. „Aukin þjónusta er lykilatriði fyrir ört vaxandi samfélag í Þorlákshöfn. Ný dagvöruverslun mun bæta verulega aðgengi íbúa að daglegum nauðsynjum og styðja við áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu. Á næstu misserum mun miðbærinn einnig taka á sig skýrari mynd með aukinni þjónustu,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss.
The provided article is not a security vulnerability disclosure; it is a business announcement regarding retail and fuel station expansion in Iceland. Therefore, none of the requested technical details (vulnerability description, CVSS score, affected versions, fixed version, or workaround) are applicable or present in the source material.