Innlent | mbl | 7.5.2026 | 20:35 Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri. mbl.is/Eyþór Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir notkun sína á innkaupakorti Reykjavíkurborgar vegna starfa sinna „fullkomlega eðlilega“. Hún segist hafa fylgt þeim leiðbeiningum við notkun kortsins sem hún fékk þegar hún tók við starfi borgarstjóra í febrúar á síðasta ári. Ríkisútvarpið greindi frá því í dag að Heiða hefði notað innkaupakortið fyrir 753 þúsund krónur. Meðal kaupa voru flugferðir, hótelkaup og veitingakaup erlendis og hérlendis. Þá greindi RÚV frá því að áfengi hefði verið keypt á kortið sem heimild þyrfti fyrir. Heiða segir að heimild hafi verið fyrir áfengiskaupum þegar þau voru gerð. Þá hafi áfengi verið keypt vegna móttöku gesta, m.a. borgarstjóra Þórshafnar. „Áfengiskaup eru þá bara ef við erum að taka á móti einhverjum gestum,“ segir Heiða við mbl.is. 300 þúsund í flugferð Heiða segir að stærsti útgjaldaliðurinn af þessari upphæð sé vegna flugs sem hún þurfti að bóka með fimm tíma fyrirvara frá Japan vegna verkfalls á flugvellinum. Hún segir að sú flugferð hafi kostað 300 þúsund krónur. Hún segir að skila þurfi inn reikningum til borgarinnar vegna kaupa á kortinu sem gjaldkerar og bókarar borgarinnar fara yfir og tryggja að reikningurinn stemmi. Ef upplýsingar skorti á reikninginn þurfi að útvega nýjan reikning með ítarlegri upplýsingum eða endurgreiða reikninginn. Þá segir hún að tvisvar hafi það gerst að reikningur sem hún sendi inn hafi ekki verið nægilega ítarlegur og kaus hún að endurgreiða reikninginn. Það var vegna veitingakaupa í Nice þar sem Heiða var stödd á Hafráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Frétt af mbl.is Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar „Ætli það séu ekki mismunandi vinnubrögð“ Greint var frá því að upphæðin á innkaupakorti Heiðu hefði verið tvöfalt hærri en forvera hennar, Einars Þorsteinssonar, sem var borgarstjóri í eitt ár. Dagur B. Eggertsson, sem var borgarstjóri í eitt og hálft ár á kjörtímabilinu, hefði ekki notað innkaupakortið. Hvað útskýrir þennan mun á upphæðunum? Einar var borgarstjóri í eitt ár og þú hefur setið þremur mánuðum lengur en hann en samt er töluvert meiri notkun á þínu korti? „Ætli það séu ekki mismunandi vinnubrögð, ég hef gert þetta eins og mér var leiðbeint þegar ég byrjaði að starfa hér,“ segir Heiða og bendir á að 300 þúsund krónur af 753 þúsund hafi verið vegna flugs frá Japan eins og rakið er hér að ofan. Hún hafi þurft að taka tiltekið flug til að komast á fund borgarstjórnar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Selkópur í fjöru á Akureyri Valur meistari eftir rosalegan spennuleik Flestir vilja Hildi sem borgarstjóra Crystal Palace leikur til úrslita „Þetta er drykkurinn sem ætti að vera í tísku núna“ Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Láttu atkvæðið telja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 234 dómar fyrnst vegna skorts á plássi ESB upplýst en þjóðin ekki 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Augljóst að upplýsingum er haldið frá þjóðinni Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Stakk dóttur sína í hjartað Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi ESB upplýst en þjóðin ekki 85 þúsund fengu 250 milljarða Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“ Nýjast á mbl.is » Selkópur í fjöru á Akureyri Valur meistari eftir rosalegan spennuleik Flestir vilja Hildi sem borgarstjóra Crystal Palace leikur til úrslita „Þetta er drykkurinn sem ætti að vera í tísku núna“ Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Láttu atkvæðið telja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hantaveiran er ekki eins og Covid Um 1.500 skip föst í Persaflóa X26 - Borgarafundur Akureyri 234 dómar fyrnst vegna skorts á plássi Mest lesið Í gær Í vikunni Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Stakk dóttur sína í hjartað Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi ESB upplýst en þjóðin ekki 85 þúsund fengu 250 milljarða Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Meirihluti þolenda eru karlmenn Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Þóra og RÚV sýknuð 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda „Allt hefur verið afbókað“
This article describes a potential misuse of a corporate procurement card by a public official, highlighting a procedural vulnerability in expense authorization and oversight. The threat involves unauthorized or inadequately justified purchases, including flights, hotels, and alcohol, which were charged to the card. The incident underscores the need for strict, auditable policies and multi-layer verification for all corporate card transactions to prevent fraud and ensure accountability.