Rússar hafa stöðvað 20 dróna sem beint var að Moskvu eftir að einhliða vopnahlé Rússa tók gildi á miðnætti að staðartíma. Borgarstjóri Moskvu, Sergei Sobyanin, greindi frá þessu á rússneska samfélagsmiðlinum Max. Hann sagði drónana hafa verið eyðilagða af loftvarnarkerfi rússneska varnarmálaráðuneytisins. Vopnahlé Rússa gildir í dag og á morgun en á morgun verða mikil hátíðarhöld í tilefni föðurlandsdagsins mikla en 9. maí er sigurdagur síðari heimsstyrjaldarinnar. Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur varað Úkraínumenn við því að ef þeir virði ekki vopnahlé Rússa verði miklar árásir gerðar á Kyiv. Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur auk þess ráðlagt íbúum og erlendum diplómötum í Kyiv að yfirgefa borgina með góðum fyrirvara. Breska utanríkisráðuneytið sagði hótanir stjórnvalda í Moskvu vera ástæðulausar, ábyrgðarlausar og algerlega tilefnislausar. Ráðuneytið bætti við að allar árásir á erlendar sendinefndir myndu þýða stigmögnun átaka. Johann Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði í viðtali við Bloomberg sjónvarpsstöðina að Þjóðverjar ætluðu ekki að kalla heim starfsfólk sitt úr sendiráðinu í Kyiv. Þá sagði ónafngreindur háttsettur heimildarmaður við AFP fréttaveituna að Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti verði í Kyiv yfir helgina.