Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Einn lét lífið í umfangsmikilli drónaárás á Kherson

Read Full Article →

Einn lét lífið og fjórir særðust í drónaárás Rússlandshers á borgina Kherson í Úkraínu í nótt. Hernaðaryfirvöld í borginni greindu frá þessu í morgun. Björgunarlið að störfum eftir árás Rússa á borgina Lviv í október.EPA / MYKOLA TYS Á sama tíma tilkynnti rússneska varnarmálaráðuneytið að á fjórða hundrað úkraínskum drónum hefði verið tortímt víðs vegar meðfram vesturlandamærum Rússlands. Ekki kemur fram hvort nokkur særðist. Bæði ríki hafa undanfarna mánuði aukið verulega notkun dróna við árásir. Þúsundir dróna eru sendar á báða bóga yfir landamærin í hverjum einasta mánuði. Rússar sendu metfjölda langdrægra dróna í áttina að Úkraínu í apríl, samkvæmt tölfræðigögnum frá úkraínska flughernum.

Share this article