Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þrír látnir og tíu göngumanna leitað við eldfjall sem fór að gjósa

  • What: Volcano eruption in Indonesia
  • Impact: Hikers missing
Read Full Article →

Google map Þrír eru látnir og tíu göngumanna er saknað við eldfjallið Dukono á Halmahera-eyju í Indónesíu sem byrjaði að gjósa í dag. Öskuský frá eldgosinu nær allt að tíu kílómetra upp frá jörðu. Fólkið var í fjallgöngu við eldfjallið þrátt fyrir að svæðið hafi verið lokað síðan 17. apríl þar sem eldgos var talið líklegt. Tveir hinna látnu eru erlendir ríkisborgarar en sá þriðji er heimamaður. Ekki hefur verið greint frá þjóðerni þeirra sem enn er leitað, en upphaflega var talið að níu þeirra sem saknað var væru frá Singapore. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um fjölda látinna og þeirra sem leitað er að.

Share this article