- What: A person was charged for walking on a restricted hiking trail
- Impact: Legal action taken against someone for violating trail rules
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ákært fólk fyrir að fara fótgangandi um Héðinsfjarðargöng í júlí í fyrra. Slíkt er með öllu bannað í göngunum. Önnur göngin eru 3,9 kílómetra löng en hin 7,1 kílómetra löng. Lögreglan birti ákæru og fyrirkall í Lögbirtingablaðinu á föstudag. Konan er skráð með lögheimili í Reykjavík en karlinn er með óþekkt heimilisfang. Ekki kemur fram í ákærunni í hvorum göngunum fólkið var né hversu langt inn í göngin það var komið. Héðinsfjarðargöng. Mynd úr safni.vegagerdin.is / RÚV