- What: The EFTA Court ruled that the European Economic Area agreement extends to the continental shelf of Norway and Iceland.
- Impact: The ruling clarifies the jurisdiction of the EEA agreement regarding worker rights in oil extraction activities off the coasts of Norway and Iceland.
EFTA dómstóllinn hefur úrskurðað að lögsaga samningsins um Evrópska efnahagssvæðið nái til landgrunns EES-ríkjanna Noregs og Íslands, en ekki aðeins landsvæði, landhelgi og efnahagslögsögu, eins og norsk stjórnvöld hafa haldið fram. Dómur EFTA dómstólsins var kveðinn upp í gær, en með honum er verið að svara fyrirspurn frá Hæstarétti Noregs um skilgreininguna; tekist hefur verið á um hana í máli sem Hæstiréttur hefur haft til meðferðar og snýst um tilskipun frá Evrópusambandinu varðandi réttindi launþega sem unnu á skipi sem notað var í tengslum við olíuvinnslu á landgrunninu úti fyrir ströndum Noregs. „Þetta er þýðingarmikill dómur og skiptir talsvert miklu máli fyrir Norðmenn, sem hafa auðvitað verið að horfa til þeirra miklu hagsmuna sem þeir hafa af olíuvinnslu á landgrunninu,“ segir Gunnar Þór Pétursson, prófessor við lagadeild HR og sérfræðingur í Evrópurétti. „Niðurstaðan kemur fræðimönnum reyndar ekkert sérstaklega á óvart, og sennilega ekki norska ríkinu heldur. Ef fallist hefði verið á kröfur Noregs, þá hefðu tilskipanir frá Evrópusambandinu haft þrengra gildissvið hjá EES ríkjunum en annars staðar á innri markaðnum, sem hefði þá orðið lagskiptur hvað þetta varðar, og það er alltaf erfitt að réttlæta það, sérstaklega hvað varðar vinnumarkaðinn, þar sem fólk er að færa sig milli svæða og ríkja.“ Úrskurður EFTA dómstólsins féll í gær. Búast má við að Hæstiréttur Noregs taki niðurstöðuna til greina þegar kveðinn verður upp dómur í málinu sem liggur að baki, en Hæstiréttur Noregs hefur á undanförnum árum ítrekað sent mál til EFTA dómstólsins til að fá álit í viðamiklum og umdeildum málum. „EFTA-dómstóllinn taldi að markmiðið að koma á fót einsleitu evrópsku efnahagssvæði með víðtækustu mögulegu framkvæmd á frjálsri för milli samningsaðilanna fæli í sér að EES samningurinn gilti, að meginreglu, þegar samningsaðilar beita lögsögu sinni innan efnissviðs samningsins. EES-samningurinn gildir þegar EES-ríki nýtir rétt sinn til að rannsaka og/eða hagnýta auðlindir á aðliggjandi landgrunni.“ segir í fréttatilkynningu frá EFTA dómstólnum. Engin áhrif á fiskvinnslu Íslensk stjórnvöld eru að skoða niðurstöðu EFTA dómstólsins og meta möguleg áhrif. Gunnar Þór segir að niðurstaða hafi að líkindum lítil áhrif hér á landi, og undir það taka aðrir sem fréttastofa hefur rætt við. „Málið hefur ekki augljós bein áhrif hér á landi, allavega ekki í bráð. En það þýðir þó ekki að hægt sé að útiloka að einstaklingar, til dæmis launþegar eins og þetta mál snýst um, geti nýtt sér þau réttindi sem þeim eru tryggð samkvæmt EES-samningnum, ef vinna þeirra fer fram á landgrunninu,“ segir Gunnar Þór. Til þess er einnig tekið að dómurinn fjallar um landfræðilegt gildissvið, en ekki efnislegt. „Dómurinn breytir þannig heldur ekki gildissviði EES-samningsins að öðru leyti, til dæmis hvað varðar hið takmarkaða vörusvið sem fellur undir hann, því landbúnaðarvörur og fiskafurðir eru að mestu leyti undanskilin í samningnum,“ segir Gunnar. Deilur um skilgreiningar orða Í málflutningi sínum héldu norsk stjórnvöld því fram að norska orðið „territorium“, sem á íslensku hefur verið þýtt sem „yfirráðasvæði“ næði aðeins yfir land, efnahagslögsögu, og lofthelgi, en ekki landgrunnið. EFTA dómstóllinn féllst ekki á þessa skilgreiningu og bendir reyndar á að löggjöf Evrópusambandsins nái til landgrunns aðildarríkjanna. Málið hefur þegar vakið mikla athygli í Noregi og margir telja að það muni hafa víðtæk áhrif á orkuvinnslu Norðmanna á hafsbotni, til dæmis hvað varðar ákvæði um að orkuframleiðendur fjárfesti í getu til að dæla koldíoxíði í jarðlög á hafsbotni.