- What: Nearly 300 comments were received regarding proposed changes to Icelandic immigration law.
- Impact: The changes aim to align Icelandic law with EU legislation regarding residency permits for individuals seeking protection due to mass displacement.
Innlent | mbl | 21.2.2026 | 21:05 Nærri 300 umsagnir um breytingar á útlendingalögum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Karítas Nærri 300 umsagnir bárust í samráðsgáttina vegna áforma dómsmálaráðherra um að breyta útlendingalögum. Megintilgangur frumvarps dómsmálaráðherra er m.a. að samræma ákvæði í lögunum er varða dvalarleyfi einstaklinga sem dvelja hér á landi á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta við löggjöf og framkvæmd Evrópusambandsins, auk þess sem miðað er við sambærilega framkvæmd í Noregi og Danmörku. Með því er komið í veg fyrir að þeir sem hafa fengið hæli hérlendis á grundvelli laga um fjöldaflótta fái sjálfkrafa ótímabundið dvalarleyfi. Frétt af mbl.is Vilja senda Sýrlendinga heim Íslensk framkvæmd yrði frábrugðin áætlun ESB „Verði ekki ráðist í lagabreytingar mun verulegur fjöldi einstaklinga sem nú dvelja hér á landi á grundvelli fjöldaflótta öðlast, í mars 2027 eða þegar stríðinu í Úkraínu lýkur, rétt til dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða og að liðnu einu ári með slíkt leyfi rétt til ótímabundins dvalarleyfis. Slík þróun myndi leiða til þess að íslensk framkvæmd yrði frábrugðin samræmdri áætlun sem unnið er að á vettvangi Evrópusambandsins,“ segir í samráðsgáttinni. Í úrlausnarefni áformanna segir að í mars 2022 hafi íslensk stjórnvöld, samhliða aðildarríkjum Evrópusambandsins og öðrum samstarfsríkjum Schengen, beitt heimild sem fjalli um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta í eitt ár vegna innrásarstríðs Rússa í Úkraínu. Frá þeim tíma hafi sú heimild verið framlengd, síðast til og með 2. mars 2027. Markmið stjórnvalda varðandi móttöku standa óhögguð „Mikilvægt þykir að Ísland fylgi samræmdri áætlun Evrópusambandsins hvað varðar úkraínskra flóttamenn á svæðinu þegar stríðinu lýkur eða þegar leyfilegur tími virkjunar fjöldaflótta líður sitt skeið. Mikilvægt er að Ísland, líkt og Evrópa, vinni að því markmiði með úkraínskum yfirvöldum að þau endurheimti eigin ríkisborgara að stríði loknu. Með frumvarpinu er ætlunin að tryggja að íslenskt lagaumhverfi sé í takt við markmið ákvæðisins og tilgang. Tilgangurinn er annars vegar að veita tímabundna vernd á meðan hennar er þörf og hins vegar að meta næstu skref, samhliða Evrópu og í ríku samráði við Úkraínu, sem stuðla að nauðsynlegri uppbyggingu innviða á svæðinu svo Úkraínumenn geti snúið farsællega til síns heima að stríði loknu. Áréttað er að markmið stjórnvalda hvað varðar móttöku fólks sem flýr stríðið í Úkraínu standa óhögguð. Þeir Úkraínumenn, sem dveljast hér á landi, geta í einhverjum tilvikum óskað eftir dvalarleyfi á öðrum grundvelli skv. lögum um útlendinga. Mikilvægt þykir að lagfæra ákvæðið sem fyrst svo fyrirsjáanleiki sé fyrir hendi hvað varðar það fólk sem eru handhafar þessa leyfis á Íslandi, þ.e. að leyfi á grundvelli tímabundinnar verndar sé eins alls staðar innan Evrópu og sé í takt við það markmið sem því er ætlað að ná. Þá má einnig nefna að með þessari breytingu er með engu verið að takmarka rétt Úkraínumanna á að fá útgefið leyfi vegna fjöldaflótta heldur einungis verið að samræma reglur við önnur ríki innan Evrópu um hvernig staðið verði að málum þegar árásastríðinu í Úkraínu lýkur eða þegar leyfilegur gildistími fjöldaflótta rennur sitt skeið,“ segir í úrlausnarefninu. 276 umsagnir Eins og fyrr segir bárust í samráðsgáttina nærri 300 umsagnir, eða 276 talsins nákvæmlega. Langflestar þeirra koma frá útlendingum, þá einna helst Úkraínumönnum sem flúðu heimaland sitt í kjölfar innrásar Rússa. Þar viðra ýmsir áhyggjur sínar vegna breytinganna og er t.a.m. bent á að eftir lok tímabundinnar verndar muni fólk missa sjálfkrafa lögmæta dvalarstöðu, jafnvel þótt það sé fullkomlega samþætt samfélaginu eftir að hafa búið hér í einhver ár. Í öðrum umsögnum skrifar fólk t.a.m. um reynslu sína af því að hafa búið hér á landi og biður um tækifæri til að dvelja hér áfram. Umsagnartíminn rann út á fimmtudag og er málið nú í vinnslu. „Það fór margt úrskeiðis“ Dýrmæt stig í súginn hjá Real Madrid Nærri 300 umsagnir um breytingar á útlendingalögum Mótmæla af krafti á nýjan leik í Íran Man. City - Newcastle, staðan er 2:1 Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Fleira áhugavert Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Trump hækkar tolla Sendi Trump 9 milljarða dala reikning Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Forstjórinn með stöðu sakbornings Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Talinn vera undir mölinni Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi „Það fór margt úrskeiðis“ Dýrmæt stig í súginn hjá Real Madrid Nærri 300 umsagnir um breytingar á útlendingalögum Mótmæla af krafti á nýjan leik í Íran Man. City - Newcastle, staðan er 2:1 Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Fleira áhugavert Trump hækkar tolla Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Endurgreiðir Trump 16,5 billjónir? Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Forstjórinn með stöðu sakbornings Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Talinn vera undir mölinni Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi