Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
MEDIUM Attacks Mbl Innlent

Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif

  • What: Cyber attack disrupts Canvas service at University of Iceland
  • Impact: Students and faculty affected during exam period
Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.5.2026 | 11:17 Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif Háskóli Íslands. Setja bókamerki Nemendur við Háskóla Íslands voru truflaðir á versta mögulega tíma, í miðri prófatörn, þegar netárás var aftur gerð í gærkvöldi á Canvas-þjónustuna sem háskólinn nýtir sér. Truflunin er sögð hafa haft verulega neikvæð áhrif á prófundirbúning margra en ráðist var einnig inn í kerfið fyrr í vikunni. Nemendur og kennarar eru hvattir til að færa yfir á pdf-mót allt mikilvægt efni, þannig að það sé aðgengilegt óháð Canvas. Sem dæmi er nefnt efni til próflesturs, verkefni og önnur gögn sem sögð eru skipta máli nú í lok vorannar. Þetta segir upplýsingaöryggisstjóri háskólans í tilkynningu sem send hefur verið til allra nemenda. „Seint í gærkvöldi, þann 7. maí, varð annað alvarlegt öryggisatvik hjá þjónustuaðila Canvas, Instructure. Samkvæmt upplýsingum frá þjónustuaðilanum var námsumsjónarkerfið tekið tímabundið úr notkun vegna atviksins á meðan unnið var að því að stöðva óheimilan aðgang,“ segir í tilkynningunni. Þakka ótrúlega þolinmæði „Atvikið beinist ekki sérstaklega að Háskóla Íslands né innri kerfum skólans heldur að alþjóðlegri þjónustu Canvas sem er notuð af fjölmörgum háskólum víða um heim. Samkvæmt upplýsingum frá Instructure breytti óviðkomandi aðili efni á síðum sem birtust hluta notenda. Kerfið var sett í viðhaldsham til að tryggja öryggi þess og er nú aftur komið í eðlilega virkni. Að sögn þjónustuaðila eru ekki vísbendingar um að aðgangur hafi fengist að notendareikningum, lykilorðum eða að gögn hafi verið tekin ólöglega úr kerfinu í þessari árás. Við gerum okkur fulla grein fyrir því að þessi truflun kemur á versta mögulega tíma, í miðri prófatörn, og hefur haft verulega neikvæð áhrif á prófundirbúning margra. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur valdið og þökkum ykkur fyrir skilning og ótrúlega þolinmæði við þessar aðstæður.“ Hlaði ekki efni niður beint Þá er mælt með því að forðast að hlaða efni niður beint á eigin tölvubúnað úr Canvas að svo stöddu. Upplýsingar um hvernig nemendur geta hlaðið efni niður sé að finna á forsíðu Canvas, Háskóla Íslands, á Canvas.hi.is „Mikilvægt er að árétta að nemendakerfi Háskóla Íslands (Ugla) er aðskilið Canvas og því eru kennitölur, lokaeinkunnir og önnur slík gögn ekki hluti af þessu öryggisatviki. Við fylgjumst áfram náið með þróun mála í samráði við þjónustuaðila og munum upplýsa ykkur án tafar ef nýjar upplýsingar berast. Við ítrekum að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að lok vormisseris gangi sem best fyrir sig þrátt fyrir þessar flóknu aðstæður.“ Frétt af mbl.is Upplýsingum um nemendur mögulega lekið Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif Inga Tinna keypti höll í Garðabæ Yfir 3.000 árásir gerðar á heilbrigðiskerfið Alls ekki búið hjá Vonn Eiga vélarnar framhaldslíf? Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Þingvellir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hantaveiran er ekki eins og Covid Stefnir í sögulegt afhroð fyrir Starmer „Afskaplega lítil“ hætta fyrir almenning Nemendum með A stórfjölgar milli ára Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum 85 þúsund fengu 250 milljarða Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Áhættumatið tekur á veikleikum Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif Inga Tinna keypti höll í Garðabæ Yfir 3.000 árásir gerðar á heilbrigðiskerfið Alls ekki búið hjá Vonn Eiga vélarnar framhaldslíf? Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Þingvellir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert X26 - Borgarafundur Akureyri Stefnir í sögulegt afhroð fyrir Starmer 30 farþegar yfirgáfu skipið á Sankti Helenu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum 85 þúsund fengu 250 milljarða Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Áhættumatið tekur á veikleikum Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka

Share this article