Stjórn Kviku banka hefur boðað til hluthafafundar þann 4. júní næstkomandi þar sem lögð verður fram tillaga um sérstaka arðgreiðslu upp á rúma 10 milljarða króna til hluthafa. Jafngildir greiðslan 2,35 krónum á hlut. Tillagan kemur í kjölfar þess að Samkeppniseftirlitið sló fyrirhugaða sameiningu Kviku við Arion banka út af borðinu. Fram kemur að þegar aðalfundur Kviku fór fram í mars hafi stjórn bankans gefið til kynna að eigið fé félagsins yrði áfram mjög sterkt þrátt fyrir þá arðgreiðslu sem þá var samþykkt. Þá hefði einnig verið til skoðunar að ráðast í frekari útgreiðslur til hluthafa síðar á árinu ef aðstæður leyfðu. Segir í tilkynningunni að í ljósi þess að ekki verði af fyrirhuguðum samruna Kviku og Arion banka sé eiginfjárstaða félagsins áfram mjög sterk og því til staðar umtalsvert svigrúm til að skila fjármunum til hluthafa. Samhliða fyrirhugaðri arðgreiðslu segir stjórn bankans að horft hafi verið til heimildar sem samþykkt var á aðalfundi félagsins til kaupa á eigin hlutabréfum fyrir allt að 10 prósent af hlutafé bankans. Stefni stjórn því einnig að því, ef aðstæður leyfa, að kaupa eigin hlutabréf fyrir allt að fjóra milljarða króna síðar á árinu.