Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Jón Elvar ráðinn framkvæmdastjóri Logos

Read Full Article →

Jón Elvar Guðmundsson, lögmaður og einn eigenda Logos lögmannsþjónustu, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins. Hann tekur við af Benedikt Agli Árnasyni, lögmanni, sem hefur gegnt starfinu síðastliðin fjögur ár. Jón Elvar hefur starfað hjá Logos frá árinu 2006 og hefur verið meðeigandi frá 2008. Hann hlaut réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 2018 og er með LL.M.-gráðu í alþjóðlegum skattarétti frá Leiden-háskóla í Hollandi, auk þess sem hann hefur lokið prófi í verðbréfamiðlun. „Ég er ákaflega spenntur fyrir þessu nýja starfi og þakka traustið sem mér er sýnt. Það verður gaman að leiða áframhaldandi uppbyggingu stofunnar með þeim öfluga hópi starfsfólks sem þar starfar,“ segir Jón Elvar. Hjá Logos starfa um 60 manns. Rekstrarhagnaður stofunnar fyrir fjármagnsliði nam á síðasta ári um 1.090 milljónum króna og jókst um nær 20 prósent frá fyrra ári. Veltan nam þá rúmlega 2,7 milljörðum króna á síðasta ári og jókst um nær 13% milli ára.

Share this article