Innlent | mbl | 23.4.2026 | 16:58 Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólamálaráðherra. mbl.is/Anton Brink Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Íslenska Logi Einarsson fundaði með Apple Engin áhersla á íslenskuna í raun Nemendur taka betur í Laxness Úthlutaði styrkjum upp á 70 milljónir Vænir Eirík um slagsíðu í svari á Vísindavefnum » Fleiri tengdar fréttir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, segir það ekki aðeins vera mikilvægt fyrir framtíð íslenskrar tungu að stýrikerfi Apple verði aðgengilegt á íslensku heldur sé það líka aðgengismál. Logi fundaði í upphafi vikunnar með fulltrúum tæknifyrirtækisins í höfuðstöðvum þess í London ásamt fulltrúum Almannaróms – miðstöðvar í máltækni á Íslandi en erindi fundarins var að óska eftir því að íslenska verði hluti af iOS stýrikerfi Apple. Apple hefur verið það tæknifyrirtæki sem stjórnvöldum hefur reynst hvað erfiðast að sannfæra um að innleiða íslenskt viðmót í tækni sína. Árið 2021 sendi Lilja Alfreðsdóttir, þáverandi menningarmálaráðherra, tæknirisanum bréf þar sem hún óskaði eftir því að íslenska yrði gerð aðgengileg í stýrikerfi fyrirtækisins. Hún fundaði svo með fyrirtækinu nokkrum mánuðum síðar en lítið kom út úr því. Spurður hvort það hafi verið langur aðdragandi að því að fá fund með fyrirtækinu segir Logi: „Já, það gekk samt ágætlega. Við nutum meðal annars atbeina forseta Íslands. Bæði ég og forseti sendum bréf þar sem við óskuðum eftir þessum fundi og hann varð svo loksins að veruleika.“ Frétt af mbl.is Logi Einarsson fundaði með Apple Íslenskir listamenn sendu stuðning í myndbandsformi Nú eru fimm ár síðan íslensk stjórnvöld leituðu fyrst eftir því að stýrikerfið yrði gert aðgengilegt á íslensku. Af hverju hefur það ekki enn orðið að veruleika? „Það er í rauninni ekki mitt að svara því. Fyrirtækið hefur einfaldlega bara lagt áherslu á aðra hluti,“ segir Logi. „En við auðvitað minntum þau á að meðal þeirra gilda sem þau standa fyrir er að skapa tækni sem að auðveldar öllum hópum heimsins aðgang að betri möguleikum sem felast í tækninni. Og við minntum auðvitað líka á að Ísland hefur lagt mikið af mörkum fyrir heimsmenninguna með sínum sagnaarfi, handritum og þvíumlíku. Og þeim þótti þó mikið til þess koma hversu stór hluti Íslendinga segist í könnunum í rauninni verðmeta tungumálið sitt svona hátt.” Þá segir Logi að það hafi verið mjög gott að fá stuðning í myndbandsformi frá íslenskum listamönnum, á borð við leikarana Ólaf Darra og Heru Hilmarsdóttur og hljómsveitina Inspector Spacetime, sem hafa unnið beint með Apple síðustu ár. Afhentu áskorun frá ÖBÍ Spurður hvort málið strandi á kostnaði segist Logi ekki telja það vera ástæðuna. „Ég held að þetta kannski sýni það að lítið málsvæði eins og Ísland þurfi náttúrulega bara sífellt að vekja athygli á sér. Það er ekki þannig að fólk sitji úti um allan heim við skrifborðið sitt og sé með augun föst á Íslandi. En um leið og við fórum að spjalla við þau þá auðvitað skilja þau þennan veruleika og taka að mörgu leyti undir hann.” Þá afhenti íslenska sendinefndin, sem samanstóð af fulltrúum ráðuneytisins og Almannaróms, Apple áskorun frá Öryrkjabandalaginu. „Ég held að það hafi skipt máli í þessu samtali þar sem þau hjá Öryrkjabandalaginu benda á að á sama tíma og mikið af þessum tækjum frá Apple feli í sér ákveðna byltingu í þjálfun og endurhæfingu þá sé bara mjög takmarkað hversu stór hluti þessa hóps getur nýtt sér þau bara vegna þess að aðgengið er ekki á íslensku.“ Mun senda bréf strax eftir helgi Apple féllst ekki á það þá og þegar á fundinum að gera stýrikerfi sitt aðgengilegt á íslensku en Logi segir að báðir aðilar hafi einsett sér að vera áfram í góðu sambandi. Þá bauð íslenska sendinefndin Apple aðgang að opnum íslenskum máltæknigögnum. „Það er auðvitað alveg gríðarlega mikilvægt fyrir þau að fá þessi gögn sem eru afrakstur atvinnulífsins, háskólanna, fyrirtækja og ekki síst Almannaróms.” Spurður hver næstu skref fyrir íslensk stjórnvöld í þessu máli séu segir Logi að hann muni senda bréf á fyrirtækið strax eftir helgi til að þakka fyrir fundinn og minna á niðurstöðu hans. Hvaða máli skiptir þetta í raun? En hvaða máli skiptir það í raun að þetta eina tiltekna stýrikerfi verði aðgengilegt á íslensku? Einhverjir hugsa eflaust með sér að þetta sé bara spurning um nokkur orð sem einhver hluti Íslendinga sér daglega. „Nei, þetta er það ekki. Það að festast inni í tækniheimi sem byggir á öðru en móðurmálinu gerir það að verkum að þitt mál smitast smám saman meira og meira og þetta hefur þannig bein áhrif til hins verra á íslenskuna,“ segir Logi og bætir við: „Síðan heldur þetta ákveðnum hlutum samfélagsins fyrir utan, fólki sem kannski af einhverjum ástæðum ræður ekki við eða er ekki gott í ensku. Þetta er líka aðgengismál. Þetta skiptir alveg ofboðslega miklu máli líka í ljósi þess hvað iPhone eða vörur frá Apple njóta mikilla vinsælda. Ef maður horfir bara á farsímann þá eru upp undir 74% allra á aldrinum 18 til 34 ára sem kjósa iPhone. Þannig að þetta er líka fyrirtæki sem auðvitað ber ákveðna ábyrgð á markaði þar sem þau eru gríðarlega sterk og mér fannst þau alveg skilja það.” Tengdar fréttir Íslenska Logi Einarsson fundaði með Apple Engin áhersla á íslenskuna í raun Nemendur taka betur í Laxness Úthlutaði styrkjum upp á 70 milljónir Vænir Eirík um slagsíðu í svari á Vísindavefnum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndir: Sól á Andrésar andar leikunum Landsliðskonan skrifaði undir samning á afmælinu sínu Ólafur Ragnar fer stórum orðum um grein FT og ESB Listakosning í fyrsta sinn frá 1958 Þarf að stoppa allt hjá FH Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Flokka Atlantshafsbandalagsríki í „góð“ og „slæm“ Áhrif á þjónustu Orkuveitunnar gætu orðið veruleg Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Andlát: Valdimar Örnólfsson Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Myndir: Sól á Andrésar andar leikunum Landsliðskonan skrifaði undir samning á afmælinu sínu Ólafur Ragnar fer stórum orðum um grein FT og ESB Listakosning í fyrsta sinn frá 1958 Þarf að stoppa allt hjá FH Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flokka Atlantshafsbandalagsríki í „góð“ og „slæm“ Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Skólamál, uppbygging og samgöngur í brennidepli Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Andlát: Valdimar Örnólfsson Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum