Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.3.2026 | 14:35 Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Íhuga að senda flugvél til Mið-Austurlanda Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Skili 1.330 milljörðum til samfélagsins Tilboðið olli mér miklum vonbrigðum Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti » Fleiri tengdar fréttir Íslenska Setja 200 milljónir til að styðja við nýjungar Segir Björk hafa rangt fyrir sér „Viðkomandi var búinn að vinna á Íslandi í mánuð“ Gera þá kröfu að allt starfsfólk tali íslensku Dröfn hlýtur Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar » Fleiri tengdar fréttir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, tekur ekki endilega undir áhyggjur tónlistarmannsins Bubba Morthens og annarra um að íslenska tungan sé í bráðri hættu. Hins vegar muni hún vissulega vera í hættu ef við sláum slöku við. Hann telur að frekari aðgerða sé þörf til að standa vörð um tungumálið og hyggst leggja fram nýja aðgerðaáætlun um íslenska tungu á þessu ári. Þetta kom fram í máli Loga í sérstakri umræðu um stöðu íslenskunnar á Alþingi í dag. Ný áætlun fyrir tvo hópa Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var upphafsmaður umræðunnar og spurði Loga meðal annars hvort hann telji nauðsynlegt að grípa til frekari aðgerða til að standa vörð um íslenska tungu í stafrænu og alþjóðlegu umhverfi nútímans og hvort hann hyggist leggja fram nýja aðgerðaáætlun um íslenska tungu eftir að áætlun sem nú er í gildi rennur út í ár. „Ég held að það sé alveg ljóst, eins og þingmaðurinn kemur inn á, að við stöndum sífellt frammi fyrir nýjum og nýjum áskorunum þegar kemur að íslenskri tungu. Nú annars vegar fólk sem hingað flytur og gerir samfélagi okkar gagn en er með annað móðurmál, og hins vegar auðvitað þessi tækni sem við erum að glíma við,“ sagði Logi í upphafi ræðu sinnar. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var upphafsmaður umræðunnar um stöðu íslenskunnar. mbl.is/Eyþór Þá svaraði hann spurningu Bryndísar um hvort nauðsynlegt væri að grípa til frekari aðgerða játandi. „Það þarf auðvitað að gera það,“ sagði Logi. Hann sagði sömuleiðis að hann muni að sjálfsögðu leggja fram nýja aðgerðaáætlun þegar sú sem nú er í gildi fellur úr gildi. „Þessi áætlun er einkum hugsuð fyrir tvo hópa, annars vegar börn og ungmenni og hins vegar innflytjendur og þá sem læra íslensku sem annað mál,“ sagði Logi. Frétt af mbl.is „Við höfum áhyggjur af þessu“ „Þá hef ég ekki miklar áhyggjur af viðgangi íslenskunnar“ Í flutningsræðu sinni sagði Bryndís Haraldsdóttir að margir hefðu lýst yfir áhyggjum af stöðu íslenskunnar, meðal annars tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens. Bubbi skrifaði ráðamönnum pistil í haust vegna andvaraleysis í garð íslenskunnar og lýsti djúpstæðum áhyggjum af stöðu hennar. Frétt af mbl.is Bubbi: „Ég segi bara nei!“ Logi segist ekki endilega taka undir þessar áhyggjur. „Þetta er viðvarandi verkefni og ég deili ekki endilega áhyggjum, hvorki Bubba Morthens né annarra, af því að íslenskan sé í einhverri bráðri hættu,“ sagði hann, en bætti við: „Hins vegar er ágætt að fá svona áhrifamikið fólk til að tala um hlutina svona, á hreinni íslensku, vegna þess að hún mun vissulega vera í hættu ef við sláum slöku við og það eru sífellt nýjar ógnir og áskoranir sem á okkur dynja. En það er með íslenskuna eins og svo margt annað í heiminum að það hefur oft verið spáð falli hennar. Ef við stöndum vaktina, ef við sinnum þeim verkefnum sem m.a. hæstvirtur þingmaður kemur inn á og við erum að gera, þá hef ég ekki miklar áhyggjur af viðgangi íslenskunnar.“ Tengdar fréttir Alþingi Íhuga að senda flugvél til Mið-Austurlanda Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Skili 1.330 milljörðum til samfélagsins Tilboðið olli mér miklum vonbrigðum Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti » Fleiri tengdar fréttir Íslenska Setja 200 milljónir til að styðja við nýjungar Segir Björk hafa rangt fyrir sér „Viðkomandi var búinn að vinna á Íslandi í mánuð“ Gera þá kröfu að allt starfsfólk tali íslensku Dröfn hlýtur Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » NATO: Tyrkland var skotmarkið Hailey Bieber nýtti tækifærið Myndskeið: Glæsilegt sigurmark Íslands Máttu fara í húsleit hjá Lyf og heilsu Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Öryggið er fyrir öllu“ Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis Loftnetin nú endanlega á útleið Beint: Enn annað ríki hótar þátttöku í stríðinu Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Forsendurnar riða til falls Meiri háttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Neyðarskýlið sannaði gildi sitt Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » NATO: Tyrkland var skotmarkið Hailey Bieber nýtti tækifærið Myndskeið: Glæsilegt sigurmark Íslands Máttu fara í húsleit hjá Lyf og heilsu Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Undirbúa rýmingu vegna hættu- eða stríðsástands Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Greiða tugi milljóna til að flýja Dúbaí Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Forsendurnar riða til falls Meiri háttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Neyðarskýlið sannaði gildi sitt Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article