Innlent | mbl | 27.4.2026 | 10:47 Ísland sendir Apple kveðju Ólafur Darri Ólafsson hefur leikið í þáttaröðum á vegum Apple TV+. Skjáskot/Youtube Setja bókamerki Tengdar fréttir Íslenska Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Logi Einarsson fundaði með Apple Engin áhersla á íslenskuna í raun Nemendur taka betur í Laxness Úthlutaði styrkjum upp á 70 milljónir » Fleiri tengdar fréttir Leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Hera Hilmarsdóttir auk tónskáldsins Atla Örvarssonar eru á meðal þeirra sem bera tæknifyrirtækinu Apple kveðju í nýju myndbandi sem er hluti af áskorun Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, um að íslenska verði hluti af iOS-stýrikerfi Apple. Logi fundaði með fulltrúum tæknifyrirtækisins Apple í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Battersea í London síðasta mánudag. Frétt af mbl.is Logi Einarsson fundaði með Apple Mikilvægt að íslenskan þróist samhliða nýjustu tækni Í tilkynningu frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu kemur fram að ráðherrann hafi lagt áherslu á hve mikilvægt það væri tungumáli sem varðveist hefur í yfir 1.000 ár að það þróist samhliða nýjustu tækni og að nýjasta tækni sé aðgengileg á íslensku, þá ekki síst með tilliti til aðgengismála. Því hafi Logi afhent fulltrúum Apple áskorun fyrir hönd ÖBÍ þar sem fyrirtækið var hvatt til þess að innleiða íslensku og standa þannig vörð um eitt af kjarnagildum sínum sem sé aðgengi. Frétt af mbl.is Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Margir íslenskir listamenn átt í samstarfi við Apple Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að íslensk tónlist, bókmenntir og sjónvarpsefni beri hróður íslenskrar menningar víða. Fjölbreytt íslenskt efni sé aðgengilegt á streymisveitum Apple og fjölmargir íslenskir listamenn hafi átt í beinu samstarfi við fyrirtækið. Sem dæmi má nefna að leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Hera Hilmarsdóttir léku í vinsælum þáttaröðum Apple TV+. Þá hlaut tónskáldið Atli Örvarsson BAFTA-verðlaun og Emmy-tilnefningu fyrir tónlist sem hann samdi fyrir sjónvarpsþætti framleidda af Apple. Aukinheldur hljómar tónlist hljómsveitarinnar Inspector Spacetime í nýrri auglýsingu fyrir iPhone 17 Pro. Kveðjuna má sjá hér fyrir neðan. Báru Apple kveðju „Íslensk menning er einstök og gerir sig gildandi hvar sem er í heiminum. Við erum ekki mörg en við erum fær í mörgu. Það kom upp sú hugmynd að enda fundinn á að bera Apple kveðju frá sameiginlegum vinum Apple og íslenskunnar með stuttu myndbandi. Að íslenskum sið var hóað í sameiginlega vini án fyrirvara og þeir beðnir að senda kveðju sem tókst svona glimrandi vel og vakti mikla lukku viðstaddra,“ er haft eftir Loga. Í myndbandinu lýsa sameiginlegir vinir ástríðu sinni fyrir tungumálinu og af hverju það skiptir máli að tungumálið sé aðgengilegt í nýjustu tækni. „Það er einstök fegurð fólgin í því að þegar kemur að tungumálinu okkar erum við sammála um að hlúa að þessari gersemi svo hún vaxi og dafni með okkur um ókomna tíð. Ég er ákaflega þakklátur þeim listamönnum sem aðstoðuðu okkur við að koma þessari kveðju saman og öllum þeim sem standa vörð um tungumálið okkar dagsdaglega með ýmsum hætti.“ Tengdar fréttir Íslenska Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Logi Einarsson fundaði með Apple Engin áhersla á íslenskuna í raun Nemendur taka betur í Laxness Úthlutaði styrkjum upp á 70 milljónir » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Annað tapið í röð eftir frábæra byrjun Myndskeið: Ísland sendir Apple kveðju Enginn skjátími fyrir börn undir tveggja ára Hart barist um leikmann Liverpool Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Umræðan Tækifærið er núna Góður rekstur skilar sér til Kópavogsbúa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Maðurinn fannst látinn við Háafoss Skotárás á hátíðarkvöldverði: Það sem er vitað Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Þjálfunaraðstaða lögreglu stenst ekki samanburð Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Hvassviðri eða stormur í kvöld Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslensku fyrirvaranir látnir liggja á milli hluta Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Nýjast á mbl.is » Annað tapið í röð eftir frábæra byrjun Myndskeið: Ísland sendir Apple kveðju Enginn skjátími fyrir börn undir tveggja ára Hart barist um leikmann Liverpool Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Umræðan Tækifærið er núna Góður rekstur skilar sér til Kópavogsbúa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Árásin undirstrikar þörfina: „Við þurfum danssalinn“ Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Hvassviðri eða stormur í kvöld Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslensku fyrirvaranir látnir liggja á milli hluta Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði