- What: Apple increased iPhone production in India
- Impact: 25% of iPhones now made in India
Apple jók framleiðslu iPhone-síma á Indlandi um ríflega 53% á síðasta ári og framleiðir nú um fjórðung af snjallsímum sínum á Indlandi. Apple setti saman 55 milljónir iPhone-síma á Indlandi á árinu 2025, samanborið við 36 milljónir árið áður, samkvæmt heimildarmönnum Bloomberg . Til samanburðar framleiðir Apple um 220-230 milljónir iPhone-síma á ári um allan heim. Hlutfall framleiðslunnar á Indlandi er því komið upp í 25%. Tæknirisinn hefur horf til þess á síðustu árum að auka verulega framleiðslu sína á Indlandi, m.a. vegna þeirra hvata sem stjórnvöld þar í landi bjóða upp á til að laða að erlenda fjárfestingu í iðnaði. Þessir styrkir vega upp á móti hluta af því óhagræði sem framleiðendur standa frammi fyrir á Indlandi, samanborið við að halda úti sömu starfsemi í Kína – t.d. þegar kemur að aðfangakeðjum og flutningum. Megnið af framleiðslu Apple fer áfram fram á Kína en tæknirisinn hefur horft til þess að ná meiri áhættudreifingu í aðfangakeðju sinni, m.a. út af krefjandi milliríkjasamskiptum Bandaríkjanna og Kína. Umfangsmiklir tollar Bandaríkjanna á innflutning frá Kína í fyrra urðu til þess að Apple og birgjar þess þurftu að færa stærri hluta framleiðslunnar til annarra staða, þar á meðal til Indlands. Sjá einnig Apple færir sig frá Kína yfir til Indlands Þótt bilið hafi minnkað kostar samsetning raftækja og framleiðsla íhluta enn meira á Indlandi en í löndum á borð við Kína og Víetnam. Stórfyrirtæki á borð við Apple og Samsung Electronics hafa því sóst eftir meiri stuðningi frá indverskum stjórnvöldum.