- What: A report shows a 388% increase in cyberattacks in Iceland in 2025.
- Impact: Increased cyber threats in Iceland, particularly targeting organizations like Microsoft, Veitum, and Póstin.
CERT-IS birti ársskýrslu sína á dögunum þar sem fram kemur að 388% aukning hafi orðið á netinnbrotum og innbrotstilraunum á Íslandi árið 2025. Arnar Gunnarsson, öryggisstjóri OK, segir þetta sláandi háar tölur á Íslandi. „Þetta er ekki eitthvað sem er að gerast úti í heimi heldur hér á litla Íslandi,“ segir Arnar. Heildarfjöldi tilkynninga til CERT-IS árið 2025 var 5.240, sem er um 26% aukning frá árinu 2024. Af þeim voru 2.312 atvik sem kröfðust aðgerða og viðbragðs, sem er 43% aukning. „Líkt og við sjáum erlendis eru vefveiðar algengastar með 1.304 atvik þar sem óprúttnir aðilar herma eftir Microsoft, Veitum, Ísland, Póstinum og Skattinum,“ segir Arnar. „En tölurnar segja ekki alla söguna þar sem við erum eingöngu um 400.000 íbúar hér á landi og við rekum gagnaversiðnað sem er orðinn meira en 5% af landsframleiðslu og við erum eingöngu með þrjá sæstrengi sem bera alla okkar tengingar við alheiminn. Þegar innbrot eða tilraunir til innbrota aukast um 388% í landi af þessari stærð eru áhrifin hlutfallslega mun meiri.“ „Ef við vitum að innbrotum er að fjölga svona hratt, hvaða breytingar gerðu stjórnendur fyrirtækja á síðasta ári til að bregðast við þessu? Þetta er spurning sem stjórnendur ættu að vera að spyrja sig. Ef svarið er „ekki mikið“ þá er tíminn til að breyta því núna en ekki á næsta ári og ekki á næsta ársfjórðungi,“ segir hann og bætir við að öryggismenntun starfsmanna, reglulegar vefveiðaprófanir og raunveruleg öryggismenning innan fyrirtækja séu gríðarlega mikilvægar. „Þetta er ekki lengur aukaatriði. Þetta er undirstaðan sem við þurfum að byggja á,“ segir Arnar ennfremur.