- What: A calculation error led to an incorrect statement by the Minister of Justice regarding the proportion of foreign nationals charged with crimes in 2023.
- Impact: The ministry has confirmed the error and will correct the response to Parliament.
Reiknivilla í einföldum prósentureikningi varð til þess að dómsmálaráðherra sagði hærra hlutfall erlendra ríkisborgara en rétt er hafa sætt ákæru fyrir brot á almennum hegningarlögum árið 2023. Frá þessu er greint á fréttavefnum Gímaldið sem bendir á að hlutfallið nemi 25,5 prósentum miðað við uppgefnar tölur um fjölda en ekki 34,2 líkt og segir í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Villan felist í því að nota fjölda ákærðra útlendinga deilt með fjölda Íslendinga, í stað þess að deila með heildarfjölda eins og kennt sé í grunnskólastærðfræði. Svo virðist sem villan sé aðeins á þessum eina stað í svarinu. Gímaldið hefur fengið staðfestingu ráðuneytisins á að mistök hafi verið gerð við útreikninginn og að Alþingi leiðrétti svarið og birti rétta niðurstöðu. Heimildin segir Morgunblaðið hafa fallið í sömu gryfju á fimmtudag með því að segja hlutfall ákærðra útlendinga árið 2024 hafa verið 43,6 af hundraði og 39,6 prósent árið áður. Þar er einnig deilt í fjölda útlendinga með fjölda Íslendinga en sé heildarfjöldinn notaður reynist hlutfallið 30,4 af hundraði. Hvers spurði Diljá Mist? Diljá Mist Einarsdóttir spurði ráðherra hve margir einstaklingar með erlent ríkisfang hafi verið ákærðir á hverju ári árin 2019-2024, sundurliðað eftir tegund brota og þjóðerni. Brotum var skipt niður í fjóra flokka: brotum gegn almennum hegningarlögum, brotum á umferðarlögum, brotum gegn ávana- og fíkniefnalögum og brotum á sérrefsilögum. Fjöldi ákærðra var talinn upp í svari ráðherra fyrir hvern brotaflokk fyrir hvert ár og skipt niður í fjölda erlendra ríkisborgara, fjölda íslenskra ríkisborgara og svo hlutfall erlendra ríkisborgara.