Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Greiddu fyrir snjallsíma sem var aldrei framleiddur

Read Full Article →

Síðasta sumar tilkynntu synir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta að þeir myndu stofna farsímaþjónustufyrirtæki undir heitinu Trump Mobile. Fyrirtækið myndi bjóða upp á eigin farsímaþjónustu og myndi jafnframt framleiða eigin snjallsíma. Síminn, sem kallaðist T1, myndi hafa þann tilgang að keppa við snjallsíma frá Apple og Samsung en á þeim tíma hafði forsetinn beint spjótum sínum að tæknifyrirtækjum, og þá sérstaklega Apple, fyrir áform sín um að framleiða ekki snjallsíma sína í Bandaríkjunum. Nýi Android-síminn myndi kosta 499 dali, eða um 61 þúsund krónur, og eftir tilkynninguna gafst framtíðarviðskiptavinum tækifæri á að panta símann fyrir fram í gegnum vefsíðu fyrirtækisins, sem gaf þó ekki upp hver framleiðandinn væri. Sjá einnig Trump kynnir eigin snjallsíma Rúmt ár er nú liðið frá tilkynningunni og hefur Trump Mobile enn ekki tilkynnt útgáfudag fyrir símann. Samkvæmt tæknimiðlinum CNET átti síminn upphaflega að koma á markað í ágúst 2025 en tafir urðu eftir að ljóst varð að stórfelld framleiðsla á snjallsímum í Bandaríkjunum væri ekki raunhæf. Þeir viðskiptavinir sem vildu panta símann fyrir fram þurftu að skrá sig á biðlista á vefsíðunni og greiða 100 dala, eða um 12 þúsund króna, staðfestingargjald. Eftirstöðvar af hinni 499 dala upphæð yrðu síðan innheimtar þegar síminn yrði sendur til kaupanda. Samkvæmt skilmálum vefsíðunnar , sem uppfærðir voru 6. apríl sl., veitir staðfestingargjaldið einungis tækifæri til að kaupa símann ef fyrirtækið skyldi raunverulega ákveða að selja símann. „Staðfestingargjaldið samvarar ekki kaupum, felur ekki í sér samþykki á pöntun, stofnar ekki til kaupsamnings, flytur ekki eignar- eða umráðarétt, tryggir ekki tiltekna lagerstöðu né ábyrgist að tækið verði framleitt eða gert aðgengilegt til kaupa,“ segir á vefsíðunni.

Share this article