Security News

Cybersecurity news aggregator

🔄
MEDIUM Updates Viðskiptablaðið

TikTok dregur úr notkun á gervi­greind

  • What: TikTok is removing an AI content summarization feature due to inaccuracies
  • Impact: Users may see less automated summaries under videos
Read Full Article →

Samfélagsmiðillinn TikTok hefur dregið úr notkun á gervigreindareiginleika sem hafði það markmið að lýsa efni myndbanda eftir að kerfið birti ítrekað furðulegar og rangar samantektir. Á vef BBC segir að einum áhrifavaldi hafi meðal annars verið lýst sem bláberi. Um er að ræða hinn svokallaða AI Overviews-eiginleika en það er sjálfvirk lýsing sem birtist undir myndböndum til að lýsa eða útskýra innihald þeirra. Eiginleikinn hefur aðeins verið prófaður hjá hluta notenda í Bandaríkjunum og á Filippseyjum, en skjáskot af hinum undarlegu niðurstöðum hafa dreifst sem eldur um sinu á netinu. Að sögn TikTok er verið að endurhanna eiginleikann svo að gervigreindin einblíni eingöngu á vörur sem sjást í myndböndunum í stað þess að draga allt efni myndbandsins saman í eina niðurstöðu.

Share this article