- What: Hollywood studios are condemning ByteDance's new AI model, Seedance 2.0, for copyright infringement.
- Impact: The AI model is being used to create videos that infringe on copyrighted material from major studios like Paramount, Netflix, and Disney.
Paramount Skydance, Netflix, Warner Bros., Sony, Disney. Þetta eru ekki aðeins stærstu kvikmyndaframleiðslufyrirtæki í heiminum heldur eiga þau öll það sameiginlegt að hafa fordæmt nýtt gervigreindarlíkan ByteDance, kínversks eiganda TikTok. Gervigreindarlíkanið Seedance 2.0 var gefið út fyrr í mánuðinum en spunagreindin er notuð til að búa til myndbönd. Skömmu eftir útgáfuna fór að birtast mikill fjöldi myndskeiða sem unnin eru með forritinu og brjóta á höfundarrétti. Þetta er efni á borð við heimatilbúnar senur í Hringadróttinssögu Peters Jacksons og myndskeið af Tom Cruise og Brad Pitt í slag. Variety hefur fylgst með þróun málsins. Hagsmunasamtök kvikmyndaveranna, Motion Picture Association (MPA), riðu á vaðið 12. febrúar og fóru fram á að ByteDance hætti að brjóta á höfundarrétti. Amazon MGM, Netflix, Paramount, Sony, Universal, Disney og Warner Bros. eru öll meðlimir í samtökunum. Nú hafa sjö af átta meðlimum MPA sent kröfubréf til ByteDance og krafist þess að fyrirtækið stöðvi höfundarréttarbrot sín án tafar. Ógna lífsviðurværi leikara SAG-AFTRA, stéttarfélag leikara í Bandaríkjunum, var meðal þeirra fyrstu til að fordæma notkun gervigreindarlíkansins. Það vill svo til að Sean Astin, sem vakti mikla lukku í hlutverki Sóma Gambans í Hringadróttinssögu, fer fyrir stéttarfélaginu í dag. Astin hefur einmitt verið látinn fara með hlutverk Sóma á ný, ef svo má segja, í myndböndum sem framleidd eru með Seedance. „SAG-AFTRA stendur með kvikmyndaverunum í að fordæma blygðunarlaus höfundarréttarbrot sem ný spunagreind ByteDance, Seedance 2.0, gefur notendum kost á að fremja,“ segir í yfirlýsingu frá stéttarfélaginu. „Brotin felast meðal annars í ósamþykktri notkun á röddum og útlitseinkennum félagsmanna okkar. Þetta er óásættanlegt og dregur úr möguleikum listafólks á að lifa af starfi sínu. Seedance 2.0 virðir ekki lög, siðferði, viðmið iðnaðarins eða almennar reglur um samþykki. Ábyrg gervigreindarþróun krefst ábyrgðar – og hún er ekki til í þessu tilfelli.“ Hagsmunasamtök kvikmyndaveranna sendu kröfubréf til ByteDance í gær. Samtökin fara fram á að fyrirtækið hætti að þjálfa Seedance 2.0 með höfundarréttarvörðu efni úr kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum. Þá fara samtökin fram á að ByteDance innleiði varnir við því að spunagreindin sé notuð til að framleiða efni sem brýtur gegn höfundarrétti. ByteDance segir í svari við kröfubréfi samtakanna að fyrirtækið virði höfundarréttarlög og muni taka viðeigandi skref til að bæta varnir gegn höfundarréttarbrotum. Lögfræðingar MPA gefa lítið fyrir svarið og segja að kvikmyndaiðnaðurinn þurfi á meiru að halda en almennum yfirlýsingum.