Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni

Read Full Article →

200 mílur | mbl | 13.2.2026 | 6:34 Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Skipverjar á frystitogaranum Arnari HU tóku þátt í æfingu á móttöku sjúkraflutningamanna með Landhelgisgæslunni. Ljósmynd/FISK Seafood Skipverjum Arnars HU, frystitogara FISK Seafood, barst á dögunum beiðni frá Landhelgisgæslunni um að taka þátt í sjóbjörgunaræfingu. Markmiðið var að æfa móttöku sjúkraflutningamanna. Í æfingunni var starfsmaður Landhelgisgæslunnar látinn síga niður um borð í Arnar. Einnig var læknir látinn síga niður, sem og sjúkrabörur. Frá þessu er sagt á vef FISK Seafood þar sem jafnframt er vitnað í fyrsta vélstjóra Arnars, Patrik Sæ Bjarnason sem segir Arnarsmenn hafa tekið þessu óvænta tækifæri vel. „Það gerist ekki mjög oft að við fáum beiðni frá landhelgisgæslunni um að taka þátt í svona æfingu, þessvegna er mikilvægt að nýta sér það þegar kallið kemur,“ segir hann. Um 18m/s vindur var meðan æfingin fór fram og aðstæður því nokkuð krefjandi. Patrik segir þó að allt hafi gengið vel fyrir sig. Aðspurður um túrinn sjálfan segir Patrik hann hafa gengið vel og sæmileg ýsa hafi fengist en veðrið hafi hins vegar ekki verið upp á marga fiska. Búist er við því að Arnar snúi aftur til hafnar 5. mars. Meðfylgjandi myndir af björgunaræfingunni voru teknar af Kristjáni Pétri Guðjónssyni netamanni og Bárði Eyþórssyni skipstjóra. Þyrla Landhelgisgæslunnar. Ljósmynd/FISK Seafood Skipverjar taka á móti línunni. Ljósmynd/FISK Seafood Sigmaður á leið niður úr þyrlunni. Ljósmynd/FISK Seafood Sigmaður kominn um borð. Ljósmynd/FISK Seafood Sjúkrabörur fylgja á eftir. Ljósmynd/FISK Seafood Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Þröngt á þingi á loðnumiðum Flotvarpan ekki stórt vandamál Höggin mörg fyrir vöruútflutning Fyrsta loðnan á Þórshöfn McDonald’s ærir netheima með kavíarpakka Gámar af fiski strand í Evrópu Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Ráðherrar sæti peningalegri ábyrgð 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Þröngt á þingi á loðnumiðum Fyrsta loðnan á Þórshöfn Flotvarpan ekki stórt vandamál Höggin mörg fyrir vöruútflutning McDonald’s ærir netheima með kavíarpakka Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Gámar af fiski strand í Evrópu Uppsöfnuð spenna er líður að loðnu 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Selja „snæþorsk“ til Gordons Ramsay Gámar af fiski strand í Evrópu Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Talsvert af loðnu á miðunum Vilja fá Gísla Jóns á Akranes Gott útlit á loðnuvertíð „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Fleira áhugavert Framkvæmdir gætu kostað milljarða Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Fer aftur á Vetrarólympíuleika 70 árum síðar Vonast eftir öðru tækifæri frá Íslendingum Fleiri tegundir » Skoða allar landanir » Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Þröngt á þingi á loðnumiðum Flotvarpan ekki stórt vandamál Höggin mörg fyrir vöruútflutning Fyrsta loðnan á Þórshöfn McDonald’s ærir netheima með kavíarpakka Gámar af fiski strand í Evrópu Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Ráðherrar sæti peningalegri ábyrgð 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Þröngt á þingi á loðnumiðum Fyrsta loðnan á Þórshöfn Flotvarpan ekki stórt vandamál Höggin mörg fyrir vöruútflutning McDonald’s ærir netheima með kavíarpakka Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Gámar af fiski strand í Evrópu Uppsöfnuð spenna er líður að loðnu 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Selja „snæþorsk“ til Gordons Ramsay Gámar af fiski strand í Evrópu Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Talsvert af loðnu á miðunum Vilja fá Gísla Jóns á Akranes Gott útlit á loðnuvertíð „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Fleira áhugavert Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Hálf-íslenskur hermaður sinnir loftrýmisgæslunni Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Fer aftur á Vetrarólympíuleika 70 árum síðar Fleiri tegundir » Skoða allar landanir »

Share this article