Erlendri snekkju var meinuð hafnarkoma á Akureyri fyrr í dag á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi fyrir innrás sína í Úkraínu sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja. Þetta kemur fram í svari Landhelgisgæslunnar eftir fyrirspurn fréttastofu. Í svari frá Landhelgisgæslunni segir að ákvörðunin hafi byggt á þeim hluta þvingunaraðgerðanna sem kveður á um að skip sem siglir undir rússneskum fána og hefur skipt um fánaríki eftir 24. febrúar 2022 er óheimill aðgangur að höfn í ríki á EES-svæðinu. Þar segir einnig að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi borist komutilkynning frá snekkjunni sem siglir undir fána Panama en snekkjan var á leið frá Istanbúl til Akureyrar með 26 manns um borð. Snekkjan enn í Eyjafirði og málið í vinnslu Við nánari skoðun hafi komið í ljós að skipið sigldi undir rússneskum fána frá því í apríl 2021 fram í september 2022. Eftir að þetta kom í ljós sendi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar erindi á skipið þar sem óskað var eftir upplýsingum og staðfestingu þess efnis að skipið hafi siglt undir rússneskum fána þar til í september 2022. Þetta þótti staðfest að gagnaöflun lokinni og á þeim grundvelli tilkynnti Landhelgisgæsla Íslands skipstjóra snekkjunnar að henni væri meinuð hafnarkoma á Akureyri. Landhelgisgæslan og utanríkisráðuneytið hafa verið í samskiptum vegna málsins og er það enn í vinnslu. Snekkjan er enn staðsett í Eyjafirði og er varðskipið Freyja einnig staðsett þar Þekktur gagnrýnandi Pútíns Greint var frá því á Vísir.is í dag að snekkjan væri La Datcha og sé í eigu rússneska auðmannsins Oleg Tinkov. Tinkov er stofnandi Tinkoff netbankans sem er einn stærsti banki Rússlands og þjónustar um 20 milljónir manna. Þess má til gamans geta að Dacha þýðir sumarbústaður eða sveitasetur á rússnesku. Hann seldi þó bankann stuttu eftir að hann gagnrýndi Vladímír Pútín, forseta Rússlands, og innrásina í Úkraínu opinberlega. Tinkov sagði á sínum tíma að hann hefði einungis fengið um 3% af raunvirði bankans en stjórnvöld í Rússlandi hefðu beitt hann þungum refsingum fyrir afstöðu sína