Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rússneska snekkjan stopp fyrir utan Hólmavík vegna vélarbilunar

  • What: A Russian fishing vessel is detained near Hólmavík due to sanctions.
  • Impact: The incident highlights ongoing geopolitical tensions and enforcement of sanctions.
Read Full Article →

Snekkjan La Datcha sem meinuð var hafnarkoma á Akureyri er enn í íslenskri landhelgi. Hún er sem stendur við akkeri nærri Hólmavík en Landhelgisgæslan gerði ráð fyrir að snekkjan yrði komin út fyrir 12 sjómílur frá landi fyrir þann 30. mars. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að smávægileg vélarbilun hafi komið upp í skútunni. Áhöfn hennar hafi óskað eftir því að fá að leggjast við akkeri á meðan gert væri við hana áður en haldið væri frá landinu. Snekkjunni var upprunalega meinuð hafnarkoma á grundvelli þvingunaraðgerða gegn Rússlandi fyrir innrás þess í Úkraínu sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja. Hún fékk síðar meir leyfi til þess að sækja olíu og neyðarvistir áður en haldið var þaðan undir eftirliti Landhelgisgæslunnar og lögreglunnar á Akureyri. Í eigu rússnesks milljarðamærings Snekkjan siglir undir fána Panama en við nánari skoðun hafi komið í ljós að hún sigldi undir rússneskum fána frá því í apríl 2021 fram í september 2022. Snekkjan er í eigu rússneska auðmannsins Oleg Tinkov. Tinkov er stofnandi netbankans Tinkoff sem er einn stærsti banki Rússlands og veitir um 20 milljónum manna þjónustu. Hann seldi þó bankann stuttu eftir að hann gagnrýndi Vladímír Pútín, forseta Rússlands, og innrásina í Úkraínu opinberlega. Tinkov sagði á sínum tíma að hann hefði einungis fengið um 3% af raunvirði bankans en stjórnvöld í Rússlandi hefðu beitt hann þungum refsingum fyrir afstöðu sína.

Share this article