- What: News about Russian oil shipment to the Philippines amid sanctions
- Impact: Countries dependent on oil imports may face supply challenges
Skip með yfir 700.000 tunnur af rússneskri hráolíu kom til hafnar í Filippseyjum í dag. Stjórnvöld í landinu lýstu yfir neyðarástandi í orkumálum fyrir nokkrum dögum vegna stríðsátakanna í Mið-Austurlöndum. Filippseyjar eru mjög háðar innflutningi á eldsneyti. Forseti landsins Ferdinand Marcos sagði í gær að stjórnvöld hefðu leitað fanga víða til að kaupa olíu. Hratt gekk á birgðir landsins og talið var að eldsneytisbirgðir landsins ættu aðeins eftir að endast í 45 daga. Olíuflutningaskipið sem flutti olíuna til Filippseyja ber heitið Sara Sky og siglir undir fána Sierra Leone. Bandaríkin tilkynntu fyrr í þessum mánuði að þau myndu aflétta viðskiptaþvingunum á sölu á rússneskri hráolíu og leyfa sölu til 11. apríl á hráolíu sem væri nú þegar um borð í skipum. Muyu Xu, greinandi hjá Kpler greiningarfyrirtækinu, sagði í samtali við fréttaveituna AFP að um það bil 120 milljónir tunna af rússneskri olíu gæti hafa verið um borð í skipum þegar viðskiptaþvingunum var aflétt og stór hluti olíunnar hafi þegar verið pantaður af kínverskum og indverskum viðskiptavinum. Samkvæmt heimildum AFP fréttaveitunnar lagðist Sara Sky að bryggju rétt fyrir utan Manila en þetta er sögð verða fyrsti innflutningur á rússneskri olíu til Filippseyja í fimm ár.