Etibar Eyyub, einn helsti olíusali Rússlands og stærsti viðskiptajöfur rússneska skuggaflotans svokallaða, hefur átt undir högg að sækja en olíuskip hans hafa verið stöðvuð af frönskum hermönnum og orðið fyrir árásum úkraínskra dróna. Á vef WSJ er farið í gegnum þær áskoranir sem hann hefur glímt við undanfarin misseri. Viðskiptaþvinganir gegn ríkisolíufélaginu Rosneft leiddu til þess að Indland dró verulega úr innflutningi á rússneskri olíu og sigldu skipin hans með milljónir tonna af óseldri olíu. Ástandið leit ekki vel út fyrir Etibar en fyrir þremur vikum réðust Bandaríkjamenn á Íran og þá breyttist staðan. Sjá einnig Setja viðskiptaþvinganir á skuggaflota Rússlands Eftir að olíukrísa myndaðist vegna stríðsins ákvað Trump að veita Indverjum 30 daga undanþágu til að kaupa strandaða rússneska olíu og framlengdi undanþáguna síðan til annarra ríkja. Olíuhreinsunarstöðvar í Indlandi og Kína eru nú farnar að vinna úr rússneskri olíu til að bæta upp fyrir þær birgðir sem sitja fastar við Hormuz-sundið. Þróunin sýnir hvernig hernaðaraðgerðir Trump hafa grafið undan tilraunum Vesturlanda til að draga úr olíutekjum Rússa með því að þrýsta á skuggaflotann og eins Vladimir Pútín til að semja um frið í Úkraínu. Sérfræðingar höfðu búist við því að Rússland þyrfti að draga úr olíuframleiðslu vegna viðskiptaþvingana en þess í stað blasir við staða þar sem bæði skuggaflotinn og Rosneft gætu endað með töluverðan hagnað.