Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Mikilvæg höfn í Rússlandi skemmd eftir árásir

This article describes a kinetic military attack, not a software vulnerability, involving Ukrainian drone strikes on critical Russian infrastructure, specifically the Ust-Luga oil export port. The attack vector is physical drone warfare targeting energy and logistics hubs to reduce Russian revenue for funding its war effort. The article does not contain any information pertaining to a software vulnerability, CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds.
Read Full Article →

Ein mesta olíuútflutningshöfn Rússlands er skemmd eftir drónaárásir í nótt. Aukinn þungi er í árásum Úkraínuhers á innviði í Rússlandi. Úkraínuher gerði í nótt drónaárás á höfnina Ust-Luga í Rússlandi, nálægt landamærunum að Eistlandi. Höfnin, sem er við Finnlandsflóa, er ein sú mikilvægasta fyrir útflutning Rússa á olíu, kolum og áburði. Þetta var önnur árásin á höfnina á innan við viku. Héraðsstjóri Norður-Leníngrad segir í færslu á samfélagsmiðlum að höfnin sé skemmd en að ekkert manntjón hafi orðið. Mikinn svartan reyk lagði frá höfninni í morgun. Aukinn þungi er í árásum Úkraínu á innviði í Rússlandi, svo sem á olíuhreinsistöðvar, olíubirgðastöðvar og hafnir. Úkraínsk stjórnvöld segja tilgang árásanna að minnka tekjur Rússa þannig að það komi niður á getu þeirra til að fjármagna hernað sinn í Úkraínu. Stjórnvöld í Úkraínu hafa ekki tjáð sig um árásina í nótt. Samkvæmt nýlegri greiningu fjölmiðilsins Reuters á markaðstölum hefur dregið úr olíuútflutningi Rússa um 40 prósent eftir ítrekaðar drónaárásir Úkraínuhers að undanförnu. Ekkert lát er á árásum Rússlandshers og samkvæmt yfirvöldum í Úkraínu drap herinn þrjá almenna borgara síðasta sólarhring og særði tuttugu, hið minnsta. Herinn beindi árásardróna að bíl í borginni Kherson og drap bílstjórann.

Share this article