Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Zelensky lofar að umdeild olíuleiðsla komist í gagnið

  • What: Zelensky confirms Druzhba oil pipeline restoration plan
  • Impact: Ukraine and neighboring countries affected by pipeline operations
Read Full Article →

Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að áætlun um að hleypa rennsli aftur á Druzhba-olíulögnina milli Rússlands og Ungverjalands fyrir lok mánaðar muni standast. Lögnin liggur í gegnum Úkraínu og skemmdist mikið í árás Rússa í janúar, að sögn stjórnvalda í Kænugarði. Málið varð að bitbeini milli Úkraínu annars vegar og Ungverjalands og Slóvakíu hins vegar. Stjórnvöld í ríkjunum, með þá Viktor Orban og Robert Fico í stafni, sökuðu Úkraínu um kúgunartilburði og kröfðust þess að olíurennsli yrði komið af stað. Zelenski sagði í dag að viðgerðum yrði lokið að hluta fyrir lok mánaðar þannig að hún kæmist í gagnið. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti.EPA / ANDREW KRAVCHENKO

Share this article