Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Kröftugar sprengingar skóku Kyiv og kona fórst í sprengingu í Lviv

  • What: Kyiv and Lviv were struck by powerful explosions, resulting in casualties and damage to infrastructure.
  • Impact: Civilians and infrastructure in Kyiv and Lviv were affected by the attacks.
Read Full Article →

Öflugar sprengingar skóku úkraínsku höfuðborgina Kyiv í nótt eftir að íbúar höfðu verið varaðir við yfirvofandi eldflaugaárás. Fréttamaður AFP í borginni kveðst hafa heyrt háværar sprengjudrunur kveða við laust fyrir klukkan fjögur í nótt að staðartíma. Borgaryfirvöld hvöttu almenning til að halda sig í skjóli uns hættan liði hjá og hvorki mynda né birta myndir af yfirstandandi hernaðaraðgerðum. Loftvarnarkerfum var beitt gegn drónum allt umhverfis Kyiv. Rússar hafa gert þungar árásir á höfuðborgina að næturlagi undanfarnar vikur með það markmið að eyðileggja orku- og hernaðarinnviði. Sjaldgæfara er að Rússar leggi til atlögu að borginni Lviv nærri landamærunum að Póllandi en lögreglukona lét lífið í sprengingu þar í nótt auk þess sem minnst fimmtán særðust. Yfirvöld segja árásina vera hryðjuverk.

Share this article