Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Úkraínumenn tilbúnir að draga úr langdrægum árásum ef Rússar forðast fjöldaárásir

  • What: Russia launches drone attacks on Kyiv
  • Impact: Civilians in Ukraine face ongoing conflict
Read Full Article →

Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti.EPA / ANGELO CARCONI Rússar gerðu drónaárásir á fjölbýlishús í Kyiv í nótt um klukkan hálf 4 að staðartíma. Ekki hafa borist fregnir af manntjóni. Þriggja daga vopnahléi milli Rússa og Úkraínumanna lauk á miðnætti. Samkvæmt Kyiv Independent lýsti Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti því yfir skömmu áður en vopnahléinu lauk að Úkraínumenn væru tilbúnir til að draga úr langdrægum árásum á hernaðarlega innviði í Rússlandi ef stjórnvöld í Moskvu forðast fjöldaárásir. Enn hafa skipti á stríðsföngum ekki farið fram líkt og um var samið með vopnahléinu. Úkraínumenn hafa sent lista með nöfnum stríðsfanga til Bandaríkjamanna sem miðla listanum áfram til Rússa.

Share this article