Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Setja á viðskiptaþvinganir vegna stuðnings við vopnaframleiðslu Írana

  • What: US imposes sanctions on individuals and companies supporting Iran's weapons production
  • Impact: Targets entities linked to Shahed drones and military equipment
Read Full Article →

Íranskur vegfarandi keyrir fram hjá Shahed-dróna sem var til sýnis á torgi í Teheran í Íran 25. september 2025.EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Bandaríkin hafa tilkynnt um viðskiptaþvinganir á 10 einstaklinga og fyrirtæki fyrir að styðja við vopnaframleiðslu Írana. Reuters fréttaveitan segir að viðskiptaþvinganirnar nái til einstaklinga og fyrirtækja sem eru meðal annars staðsett í Kína og Hong Kong. Bandaríska fjármálaráðuneytið segir viðskiptaþvinganirnar vera vegna viðskipta með vopn og búnað fyrir meðal annars Shahed-dróna og flugskeyti. Greint var frá þessu í gær, aðeins nokkrum dögum áður en Donald Trump Bandaríkjaforseti fer í opinbera heimsókn til Kína og fundar með leiðtoga Kína Xi Jingping í Peking 14. og 15. maí.

Share this article