- What: Tensions rise in nuclear negotiations between Iran and the US.
- Impact: Talks in Geneva continue with no clear compromise, amid US military threat.
Íransstjórn heldur áfram að hóta grimmilegum viðbrögðum láti Bandaríkin til skarar skríða með atlögu að landinu og ítrekaði að allt færi þá í bál og brand í Mið-Austurlöndum. Leiðtogar ríkjanna hafa haft í hótunum á víxl á sama tíma og bæði undirbúa óbeinar viðræður um kjarnorkuvopnasamning í Genf á föstudag. Íranar hafa sagst geta lagt fram drög að áætlun á næstu dögum en Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á fimmtudag þá hafa fimmtán daga til að skila þeim. Íranar segja áætlun sína snúast um borgaralega notkun kjarnorku en ríki á Vesturlöndum óttast að þeir hyggist smíða kjarnorkusprengju. Bandaríkjamenn vilja því einnig ræða þær grunsemdir og stuðning Írana við vígasveitir í heimshlutanum. Á sama tíma hefja háskólastúdentar misserið með mótmælum gegn klerkastjórninni með svipuðum slagorðum og mótmælendur sem mættu hörðum og blóðugum viðbrögðum stjórnvalda í janúar. Annarri umferð samningaviðræðna með milligöngu Ómana lauk í Sviss í síðustu viku.