Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Viljayfirlýsing um uppbyggingu LHÍ undirrituð

Read Full Article →

Innlent | mbl | 9.5.2026 | 13:57 Viljayfirlýsing um uppbyggingu LHÍ undirrituð Listaháskóli Íslands. Ljósmynd/Stjórnarráðið Setja bókamerki Viljayfirlýsing um uppbyggingu framtíðarhúsnæðis Listaháskóla Íslands í Stakkahlíð var undirrituð í dag. Allar deildir Listaháskólans munu í fyrsta sinn frá stofnun skólans sameinast undir einu þaki. Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að yfirlýsingin marki tímamót í sögu skólans þar sem fjármögnunin er nú útlistuð með skýrum hætti. Því sé undirritun yfirlýsingarinnar sérstakt fagnaðarefni. Viljayfirlýsinguna undirrituðu Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Kristín Eysteinsdóttir rektor við opnun útskriftarsýningar BA-nema í arkitektúr, hönnun og myndlist í Listasafni Reykjavíkur. Hefur hýst menntastofnun frá upphafi Í dag er Listaháskólinn starfræktur í fjórum byggingum en stór hluti starfseminnar fer nú þegar fram í Stakkahlíð. Byggingin við Stakkahlíð 1 er mörgum kunnug en þar var Kennaraháskóli Íslands til húsa frá árinu 1962 sem síðar sameinaðist Háskóla Íslands. Nýjasta byggingin, Hamar, var reist á lóðinni um síðustu aldamót og tekin í notkun árið 2002. Húsnæðið við Stakkahlíð 1 hefur því hýst menntastofnun allt frá upphafi en fær nú nýtt hlutverk sem kjarni skapandi greina á Íslandi. Gert er ráð fyrir að byggt verði við húsnæðið til að koma starfseminni þar fyrir til framtíðar. Í fyrsta áfanga verður ráðist í verulegar endurbætur á núverandi húsnæði undir starfsemi háskólans. Í öðrum áfanga verður farið í uppbyggingu á svæðinu til að koma annarri sérhæfðri starfsemi háskólans fyrir sem rúmast ekki innan núverandi bygginga á grundvelli þarfagreiningar. Má rekja til stofnunar skólans Umræðuna um að koma skólanum undir eitt þak má rekja allt til stofnunar skólans en það hefur verið markmiðið frá upphafi. Ýmsir valkostir hafa verið skoðaðir undir starfsemina en nú liggur fyrir raunhæft val á hentugri staðsetningu. „Skapandi greinar hafa ómæld tækifæri til vaxtar og Listaháskóli Íslands er vagga og burðarstoð þessara greina og gegnir því lykilhlutverki. Með viljayfirlýsingunni er fjármögnun verkefnisins loksins tryggð á skýran hátt sem eru sannkölluð tímamót,“ er haft eftir Kristínu Eysteinsdóttur, rektor Listaháskóla Íslands. „Það gerir okkur kleift að reisa nýjan Listaháskóla hratt og vel þannig að skólinn fái sambærilega aðstöðu og aðrir háskólar landsins. Þetta er fagnaðarefni fyrir land og þjóð og við erum þakklát menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra fyrir að leiða málið áfram af festu og framsýni.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Guðlaugur kom að marki í frábærum sigri Sunderland – Man. Utd, staðan er 0:0 Uppskrift af peysum bræðranna Ljónshjarta Viljayfirlýsing um uppbyggingu LHÍ undirrituð Misstigu sig í þýsku toppbaráttunni Umræðan Snúum Reykjavík við Játningar frjálslynda málfræðingsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Létta leyndarhjúp af FFH-skjölum Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Sex færslur rangt merktar Lars Løkke kyndir undir kóngi Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Óboðlegur sveigjanleiki Táraðist við að hringja bjöllunni Sex færslur rangt merktar Flugi aflýst í annað sinn í vikunni Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný Einkunnirnar ekki til hjá borginni Maður vopnaður eggvopni handtekinn og fluttur til Reykjavíkur Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Húsnæðislán á 47 sekúndum Nýjast á mbl.is » Guðlaugur kom að marki í frábærum sigri Sunderland – Man. Utd, staðan er 0:0 Uppskrift af peysum bræðranna Ljónshjarta Viljayfirlýsing um uppbyggingu LHÍ undirrituð Misstigu sig í þýsku toppbaráttunni Umræðan Snúum Reykjavík við Játningar frjálslynda málfræðingsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óboðlegur sveigjanleiki Lars Løkke kyndir undir kóngi Létta leyndarhjúp af FFH-skjölum Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Óboðlegur sveigjanleiki Táraðist við að hringja bjöllunni Sex færslur rangt merktar Flugi aflýst í annað sinn í vikunni Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný Einkunnirnar ekki til hjá borginni Maður vopnaður eggvopni handtekinn og fluttur til Reykjavíkur Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Húsnæðislán á 47 sekúndum Loka

Share this article