Innlent | mbl | 28.4.2026 | 14:53 Ábati uppbyggingarinnar fer í nýjan listaháskóla Daði Már að loknum blaðamannafundi í morgun. mbl.is/Karítas Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Ábatanum af samningum um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á lóð ríkisins í Laugarnesi verður ráðstafað til að byggja upp nýtt húsnæði fyrir Listaháskóla Íslands. Þetta segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, í samtali við mbl.is að loknum blaðamannafundi þar sem annar húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar var kynntur í morgun. Megnið af fundinum fór í að kynna áform um uppbyggingu 1.200–1.400 íbúða á lóðum ríkisins á ýmsum stöðum í Reykjavík: við Borgartún, Grensásveg, efri hluta Laugavegar, Laugarnesveg, Seljaveg og austan Korpúlfsstaða. Frétt af mbl.is Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Áhersla á minni eignir „Við höfum auðvitað lagt mjög mikla áherslu á það að þessi uppbygging svari kalli markaðarins. Það er ljóst að það er ákveðið ójafnvægi á markaðnum í dag og mikið til af stærri eignum, ekki nægilega mikið af minni eignum. Þannig að áherslan verður þar en þetta er samvinnuferli okkar og Reykjavíkurborgar,“ segir Daði spurður hvernig það verði tryggt að íbúðirnar sem byggðar verði mæti raunverulegum þörfum markaðarins. Verða þetta þá fyrst og fremst minni eignir? „ Áhersla okkar er á að þetta svari kalli markaðarins um minni eignir sem henta til dæmis fyrstu kaupendum. Frétt af mbl.is Ekki kosningabrella Flókið verkefni Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri tók fram í kynningu sinni á fundinum að langt væri síðan borgin hefði hafið umleitanir um að byggja á umræddum reitum. Spurður af hverju samningur sem þessi hafi ekki litið dagsins ljós fyrr segir Daði: „Ég get ekkert sagt um fyrri samskipti og kann svo sem engar skýringar á því. Þetta var flókið verkefni. Kannski þurfti bara ákveðinn forgang í það vegna þess að samtölin hafa verið að jafnaði mjög uppbyggileg.“ 1.200 - 1.400 íbúðir verða byggðar á lóðum ríkisins. mbl.is/Karítas Í ákveðnum farvegi Meðal þéttingarreitanna sem til stendur að byggja á er lóðin í kringum Laugarnesveg 91. Þar eru sviðslistadeild og myndlistardeild Listaháskóla Íslands til húsa sem og önnur starfsemi á borð við skjalageymslur Þjóðleikhússins og hluta af geymslum Listasafns Íslands. Spurður hvort þessi uppbyggingaráform þýði að Listaháskólinn muni flytja í nýtt húsnæði eins og stjórnendur hans hafa lengi kallað eftir segir Daði: „Listaháskólinn er með brot af starfseminni sinni þarna og þetta er húsnæði sem hentar honum engan veginn og hann myndi gjarnan vilja komast í annað húsnæði. Á meðan það húsnæði er ekki risið þá verður að nýta þetta húsnæði sem er þarna. Það er hins vegar þannig að það liggur fyrir gömul viljayfirlýsing sem við höfum endurnýjað um að ábatanum af þessum samningi varðandi Laugarnesið verði ráðstafað til að byggja upp nýtt húsnæði fyrir Listaháskólann í tengslum við flutning hans í Stakkahlíðina.“ Þá segir Daði að geymslumálin séu líka til skoðunar. „Það eru mál sem við erum nú líka með í svona ákveðnum farvegi og ég nefndi í þessu samhengi samtal okkar við Hafnarfjarðarbæ. Það hefur lengi legið fyrir að ríkið gæti hagrætt í geymslumálum sínum almennt og þetta á ekki síður við um þá lóð sem að þessir samningar ná ekki til en við vitum að í framtíðinni mun losna og það er Þjóðskjalasafnið við Laugaveg.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ábati uppbyggingarinnar fer í nýjan listaháskóla Afmælisbrennivín á Jómfrúnni Íslenski ólympíufarinn hættir Jón Pétur biðst afsökunar á orðum sínum Mesta magn í sögunni Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki Samgöngutafir eru rándýrar Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Hrósað fyrir aðlögun að ESB Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Samgöngutafir eru rándýrar Enginn úr meirihlutanum mætti Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Dýrkeypt veikindahlutföll Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Ábati uppbyggingarinnar fer í nýjan listaháskóla Afmælisbrennivín á Jómfrúnni Íslenski ólympíufarinn hættir Jón Pétur biðst afsökunar á orðum sínum Mesta magn í sögunni Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Húsnæðismarkaðurinn vinnur gegn lágtekjufólki Samgöngutafir eru rándýrar Hrósað fyrir aðlögun að ESB Kristrún vill sjálf dæma Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Samgöngutafir eru rándýrar Enginn úr meirihlutanum mætti Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Dýrkeypt veikindahlutföll Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“