Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Myndir: Framtíð í fjarskiptum í Grósku

Read Full Article →

Fullt var út úr dyrum í Sykursalnum í Grósku í vikunni þegar KLAK – Icelandic Startups, Stjórnvísi, Huawei og Nova stóðu fyrir viðburðinum Framtíðin í fjarskiptum. Árni Rúnar Birnuson, Guðmundur Ólafsson, Björn Þórsson og Þórir Gunnarsson © Aðsend mynd (AÐSEND) Anna Schalk Sóleyjardóttir, Arnardóttir Gunnhildur og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir. © Aðsend mynd (AÐSEND) Þar komu saman fulltrúar úr tækni-, nýsköpunar- og atvinnulífi til að ræða hvernig fjarskipti, gervigreind og snjallvæðing munu móta stafræna framtíð Íslands. Árni Rúnar og Ólafur Magnússon. © Aðsend mynd (AÐSEND) Fanney Saga Friðriksdóttir, Ester Gunnarsdóttir og Stefanía Ósk Rakelardóttir. © Aðsend mynd (AÐSEND) Á viðburðinum var sjónum beint að því hvernig fjarskiptainnviðir verða sífellt mikilvægari forsenda framþróunar í gervigreind, IoT, og stafrænum lausnum sem hafa áhrif á daglegt líf fólks, fyrirtækja og samfélagsins alls. Hannes Helgi J.Sigurdsson og Hafsteinn Hugi Hilmarsson. © Aðsend mynd (AÐSEND) Helgi Skúli Friðriksson og Trausti Árnason. © Aðsend mynd (AÐSEND) „Viðbrögðin við viðburðinum sýna skýrt að áhuginn á þessu málefni er gríðarlega mikill. Það kemur kannski ekki á óvart enda eru fjarskipti, gervigreind, og IoT allt málaflokkar sem tengjast og eru að þróast virkilega hratt þessa dagana og augljóst að fram undan eru miklar og áhugaverðar breytingar í umhverfinu okkar,“ segir Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson, markaðsstjóri Nova. Kári Georgsson, Sigurður Óskarsson og Einar Húnfjörð. © Aðsend mynd (AÐSEND) Viðburðurinn er hluti af aðdraganda Startup SuperNova, nýsköpunarhraðals KLAK – Icelandic Startups, Nova og Huawei sem styður við sprotafyrirtæki og frumkvöðla við þróun nýrra lausna á sviði tækni og stafrænnar nýsköpunar.

Share this article