Rússar og Úkraínumenn saka hvor annan um brot á þriggja daga vopnahléi sem samið hafði verið um. Alls hefur verið tilkynnt um 51 árás Rússa í Úkraínu og þá segja Rússar að Úkraína hafi gert drónaárásir og stórskotaliðsárás. Tveir voru drepnir og þrír særðust í árás rússneska hersins á Zaporizhzhia og Dnipropetrovsk í Úkraínu. Þá eru þrír særðir eftir árás úkraínska hersins í Belgorod-héraði í Rússlandi. Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði á hátíðarhöldunum í Moskvu í gær að átökin væru að líða undir lok en gagnrýndi harðlega stuðning Vesturlanda við Úkraínu. Í ávarpi sínu sagði hann að Rússar væru að berjast við árásargjarnt afl í Úkraínu sem nyti stuðnings NATO. Hann lýsti hernaðarlegum markmiðum sínum sem réttlátum. Pútín segir að hann sé tilbúinn að hitta Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta í þriðja landi, utan Rússlands eða Úkraínu, en aðeins þegar öll skilyrði fyrir friðarsamkomulagi hafa verið uppfyllt. Fundur þeirra yrði þá lokahnykkurinn í þessu ferli, ekki samningaviðræðurnar sjálfar.
This article describes geopolitical and military hostilities, not a software vulnerability or technical threat. It reports on alleged ceasefire violations between Russian and Ukrainian forces, including drone strikes and artillery attacks, resulting in casualties on both sides. The content is unsuitable for a technical security vulnerability summary as it contains no information on attack vectors, CVSS scores, or affected software versions.