- What: Israeli airstrike in Gaza
- Impact: At least seven Palestinians killed
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 9 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Minnst sjö drepnir í loftárás Ísraelshers Markús Þ. Þórhallsson Hús stendur í ljósum logum eftir árás Ísraelshers. EPA / MOHAMMED SABER Að minnsta kosti sjö Palestínumenn voru drepnir í loftárás Ísraelshers á Gaza í kvöld, þar á meðal minnst eitt barn, samkvæmt upplýsingum heilbrigðisyfirvalda. Ísraelsmenn segja skotmarkið hafa verið Izz al-Din al-Haddad, leiðtogi hernaðarvængs Hamas. Stjórnvöld gruna hann um að vera einn höfuðpaura hryðjuverkaárásarinnar á Ísrael 7. október 2023. Ekki liggur fyrir hvort al-Haddad var drepinn í árásinni. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í nýrri könnun Maskínu Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Reykjavík samkvæmt könnun Maskínu sem birtist í kvöld. Samfylkingin kemur næst, þá Vinstrið, Viðreisn og Miðflokkur. Framsókn og Sósíalistar næðu einnig inn manni en aðrir flokkar ekki. Meirihlutinn væri fallinn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Áhorfendum fannst Hildur standa sig langbest í kappræðunum Hildur Björnsdóttir hlaut langflest atkvæði áhorfenda á RÚV-Stjörnur í oddvitakappræðum fyrir borgarstjórnarkosningarnar í kvöld. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Hvorki eldur né reykur þegar slökkvilið mætti Slökkvilið var kallað út með miklum viðbúnaði vegna tilkynningar um eld í ruslageymslu í Breiðholti seint í kvöld. Þegar slökkviliðsmenn mættu fyrir utan fjölbýlishúsið reyndist þó hvorki vera reykur né eldur og var útkallið afturkallað. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Villa vann Liverpool og stal sætinu Jóhann Páll Ástvaldsson John McGinn fagnar marki sínu í kvöld. IMAGO Aston Villa vann Liverpool 4-2 í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta rétt í þessu. Fyrir leik var Villa í 5. sæti og Liverpool í því fjórða en Villa skaust upp fyrir liðið með sigrinum. Villa er nú með 62 stig í 4. sætinu og Liverpool með 59 í því fimmta. Morgan Rogers kom Villa yfir á 42. mínútu. Virgil van Dijk jafnaði svo metin fyrir Liverpool á 52. mínútu. Ollie Watkins kom heimamönnum svo aftur yfir skömmu síðar, á 57. mínútu. Hann gerði svo út um leikinn með öðrum marki sínu á 73. mínútu. John McGinn skoraði fjórða mark Villa undir lok venjulegs leiktíma en van Dijk skoraði sárabótarmark í uppbótartíma. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Tindastóll slökkti í titildraumi Grindvíkinga um stund Tindastóll minnkaði muninn í úrslitaeinvíginu gegn Grindavík um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta eftir 89-94 sigur. Staðan í einvíginu er nú 2-1 og geta Grindvíkingar lyft titlinum á Sauðárkróki í næsta leik á mánudaginn kemur. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Óljóst hverju var áorkað með heimsókn Trumps til Kína Óljóst er hverju var áorkað með heimsókn Bandaríkjaforseta til Kína sem lauk í dag. Forsetarnir funduðu um mikilvæg málefni og sögðust báðir hæstánægðir með heimsóknina. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitarnir í borginni tókust á Oddvitar allra ellefu framboðanna í Reykjavík mættust í kappræðum í sjónvarpssal í kvöld. Þar fengu þeir síðasta tækifærið til að sannfæra borgarbúa fyrir sveitarstjórnarkosningar á laugardag. SAMANTEKT Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitakappræður: Hver stendur sig best? Þeir sem horfa á oddvitakappræðurnar á RÚV geta valið þá sem standa sig best í RÚV-stjörnur appinu. Sigurvegarar í RÚV-stjörnukeppninni fyrir síðustu alþingiskosningar mynduðu ríkisstjórn. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Deilur og stríð Kynferðislegt ofbeldi að aukast í vopnuðum átökum Kynferðislegu ofbeldi og pyndingum er beitt í auknum mæli sem vopni í stríðsátökum í heiminum. Amnesty International segja mikilvægt að draga gerendur til ábyrgðar. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Færeyjar Færeyingar afnema virðisaukaskatt af eldsneyti Guðmundur Atli Hlynsson Tillaga um að fella niður virðisaukaskatt af bensíni og dísilolíu var samþykkt við þriðju umræðu á færeyska lögþinginu í dag. Á vef færeyska ríkissjónvarpsins, Kringvarpsins, segir að lögin taki væntanlega gildi á morgun. Lögin um afnám virðisaukaskatts af eldsneyti í Færeyjum gilda til 31. júlí. Kringvarpið hefur eftir Akseli V. Johannesen, fjármálaráðherra Færeyja, að heimastjórnin muni þá meta stöðuna. Þórshöfn er höfuðborg Færeyja. KVF Hér á Íslandi hefur virðisaukaskattur á eldsneyti verið lækkaður úr 24% í 11% til að bregðast við verðhækkunum á olíu á heimsvísu. Lækkunin gildir til 31. ágúst. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélagsmiðlar Bottar notuðu mynd af venjulegum úthverfapabba – „Mjög scary“ Gerviaðgangar á Facebook hafa gert vart við sig í athugasemdakerfum í aðdraganda kosninga. Að minnsta kosti 40 aðgangar hafa verið búnir til með myndum frá venjulegum Íslendingum sem margir hverjir eru grunlausir. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Palestínumenn beittir grófu kynferðisofbeldi og pyndingum Palestínskir fangar Ísraelshers eru beittir umfangsmiklu og grófu ofbeldi í haldi Ísraelsmanna. Þetta kemur fram bæði í skýrslum mannréttindasamtaka og í pistli blaðamanns um málið. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu í lokakönnun Gallups Niðurstöður lokakönnunar Þjóðarpúls Gallups um fylgi allra stjórnmálaflokka í Reykjavík liggja fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 31% fylgi. Útlit er fyrir meirihluta til hægri. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Ísland vann öruggan sigur gegn Egyptum Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann þriggja marka sigur gegn Egyptalandi, 27-30. Þetta var seinni æfingaleikur liðanna í Egyptalandi. Ísland náði mest fimm marka forskoti. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Fyrrverandi deildarstjóri á öryggisgeðdeild fær 800 þúsund frá ríkinu Fyrrverandi deildarstjóri á réttar- og öryggisgeðdeild lagði landlækni fyrir Landsrétti vegna brota á persónuverndarlögum. Héraðsdómur hafði sýknað embættið fyrir að veita upplýsingar um að deildarstjórinn væri kominn í leyfi vegna kvartana. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Leitin að næsta Bond formlega hafin Biðin eftir næsta James Bond gæti verið brátt á enda. Margir leikarar hafa verið nefndir sem mögulegir njósnarar hans hátignar. Víst er að það verða stór fótspor sem hinn nýi Bond þarf að fylla. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Yfir 200 þúsund á hótelum og veitingastöðum í kortafærslum bæjarstjóra Akureyrar Kortafærslur bæjarstjóra Akureyrar sýna færslur upp á rúmlega 200.000 krónur á hótelum og veitingastöðum síðan í nóvember. Akureyrarbær hefur úthlutað 54 innkaupakortum og verið er að endurskoða reglurnar. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kosningar Bottar orðnir virkir í athugasemdum hjá Viðreisn Bottar eru orðnir virkir í athugasemdum hjá Viðreisn á Facebook. Fjölmargar nýjar athugasemdir hafa verið skrifaðar af aðgöngum þar sem ekki er alvöru fólk á bak við. Bottarnir eru ekki á vegum Viðreisnar að sögn framkvæmdastjóra flokksins. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Lyfjastofnun varar við fölsuðum Xanax-hylkjum Lyfjastofnun varar við fölsuðum Xanax-hylkjum í umferð. Lyfið inniheldur sterkt slævandi dýralyf. Ofskömmtun getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Öll mörk dagsins: Grindavík/Njarðvík henti Val út úr bikarnum 16-liða úrslit bikarkeppni kvenna í fótbolta hófust í dag með fimm leikjum. Sameinað lið Grindavíkur/Njarðvíkur sló Valskonur út og er komið áfram í 8-liða úrslit. Liðið er nýliði í efstu deild. Lokatölur á Hlíðarenda urðu 2-3 eftir afar fjörugan leik. FH fór áfram eftir 0-7 stórsigur gegn Selfoss. Fram vann ÍA 3-0 og Stjarnan vann Þór/KA 1-4. Víkingur vann Keflavík 0-2 eftir framlengingu. Hér fylgdumst við með gangi mála á lifandi fréttavakt. Þá má sjá öll mörk dagsins hér að neðan. SAMANTEKT Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Kosningar um sameiningu á Ströndum ógildar Meirihluti íbúa Árneshrepps og Kaldrananeshrepps samþykkti í mars að sveitarfélögin yrðu sameinuð. Lagt var til að sameiningin tæki gildi í lok maí en framkvæmd kosninganna var kærð til innviðaráðuneytisins sem hefur ógilt þær. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hvað skiptir unga kjósendur mestu máli? Ungir kjósendur eru yfirleitt taldir þeir sem hægt er að hafa mest áhrif á og velji seint hver fær atkvæði þeirra. En hvað skiptir unga kjósendur mestu máli í sveitarstjórnarkosningunum og ætla þeir að nýta kosningaréttinn? 15. maí 2026 kl. 14:33INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Fögnuðu aldarafmæli Ísaksskóla Nemendur og starfsfólk Ísaksskóla héldu upp á aldarafmæli skólans í dag. Foreldrar og aðstandendur sóttu opið hús og fögnuðu tímamótunum. 15. maí 2026 kl. 14:21INNLENDAR FRÉTTIR Myndlist Feneyjatvíæringur í óþægilegum skugga alþjóðapólitíkur Feneyjatvíæringurinn, stærsta myndlistarhátíð heims, er nýhafin. Á sama tíma og gestir streyma á milli þjóðarskála og risavaxinnar samsýningar varpar alþjóðapólitíkin skugga á hátíðina. Kastljós var á staðnum. 15. maí 2026 kl. 14:11INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Undirrita viljayfirlýsingar um íbúðauppbyggingu í Reykjavík Reykjavíkurborg, Bjarg íbúðafélag, Félag íslenskra náttúrufræðinga og Viska undirrituðu í dag viljayfirlýsingar um íbúðauppbyggingu á nokkrum stöðum í borginni. 15. maí 2026 kl. 14:08INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélög Pizzutilboð og annað smáræði í færslum bæjarstjóra Bæjarstjóri Mosfellsbæjar hefur keypt veitingar fyrir bæjarstjórnarfundi fyrir rúmlega 47.000 krónur og bæjarstjóri Hafnarfjarðar keypti tíu þriðjudagstilboð á Pizzunni fyrir ungmennaráð Hafnarfjarðar. 15. maí 2026 kl. 14:06INNLENDAR FRÉTTIR Veður Varasamur vindur á Suðurlandi á morgun Grétar Þór Sigurðsson Það verður hvasst undir Eyjafjöllum á morgun. Víðir Hólm Ólafsson Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við akstursskilyrðum við Reynisfjall og