Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

582 milljóna hagnaður

Read Full Article →

Vísisjóðurinn REY I - Sprotar, áður Eyrir Sprotar, hagnaðist um 582 milljónir króna í fyrra, samanborið við 182 milljóna tap árið 2024. Frá upphafi hefur sjóðurinn fjárfest í tíu sprotafyrirtækjum en í árslok 2025 átti sjóðurinn eignarhluti í sex fyrirtækjum. Á árinu seldi félagið eignarhlut sinn í Handpoint ehf. og greiddi andvirðið að frádregnum kostnaði, 165 milljónir króna, út í formi hlutafjárlækkunar til hluthafa. Hagnaður ársins myndast að mestu vegna sölunnar á Handpoint og jákvæðrar matsbreytingar á eignarhlutum félagsins í Sæbýli ehf og Activity Stream. Sjóðurinn á einnig hluti í SagaNatura, Florealis, eTactica og Cooori Holdings í Japan. Fræ Capital er stærsti hluthafinn með 46,5% hlut. Arion banki á 24,3% hlut, Lífeyrissjóður Verslunarmanna á 18,9% og Birta lífeyrissjóður á 8,5% hlut. Pólaris á þá 1,3% hlut, Brú Venture Capital á 0,6% hlut og ReykVC á 0,1%. Sjóðurinn er í rekstri ReykVC og er Kristinn Pálmason framkvæmdastjóri. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article