Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Neyðarlokun á bráðamóttöku í Kristianstad – Þrír grunaðir um manndráp

  • What: Three people arrested in connection with an assault at a hospital in Kristianstad
  • Impact: Hospital temporarily closed due to security concerns
Read Full Article →

Þrír hafa verið handteknir í tengslum við stunguárás í Kristiansstad í Svíþjóð, sænska blaðið Aftonbladet greinir frá. Maður á þrítugsaldri lést af sárum sínum eftir að aðstandendur hans komu honum á bráðamóttöku með alvarlega áverka. Lögreglan segir mikið uppnám hafa orðið á bráðamóttökunni við komu mannsins, og því hafi þurft að grípa til tímabundinnar neyðarlokunar. Lögreglumenn hafi náð stjórn á aðstæðunum, ásamt öryggisvörðum spítalans. Lokunin hafi ekki haft teljandi áhrif á starfsemi bráðamóttökunnar. Þrír menn á þrítugsaldri voru handteknir í nótt. Þeir verða yfirheyrðir í dag.

Share this article