Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Annar sigur KA í röð og Eyjamenn enn á botninum

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 4 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Annar sigur KA í röð og Eyja­menn enn á botn­in­um Hans Steinar Bjarnason Sjöttu umferð Bestu deildar karla í fótbolta lauk í kvöld þegar KA vann 2-0 sigur á ÍBV. Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði fyrr markið á 17. mínútu en sjálfsmark gestanna á 90. mínútu gerði út um leikinn. Hallgrímur Mar Steingrímsson. Mummi Lú Þetta var annar sigur KA í röð og eru það einu sigrar liðsins í deildinni í sumar. KA komst með sigrinum upp í 6. sæti með sjö stig. ÍBV er aðeins með eitt stig á botni deildarinnar, stigi undir FH sem er í næst neðsta sæti. Besta deild karla Fyrir 17 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti AGF dansk­ur meist­ari í fót­bolta í fyrsta sinn í 40 ár Hans Steinar Bjarnason AGF í Árósum varð í dag Danmerkurmeistari karla í fótbolta í fyrsta sinn í 40 ár. Það varð ljóst eftir 2-0 útisigur á Brøndby. Midtjylland var eina liðið sem átti líka möguleika á titlinum en gerði markalaust jafntefli við Nordsælland fyrr í dag. Stuðningsfólk AGF. IMAGO / Gonzales Photo AGF nýtti sér það og er nú með fjögurra stiga forystu á Midtjylland fyrir lokaumferðina svo þessi langþráði meistaratitill er í höfn. Fyrir 47 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Há­dram­at­ísk­ur sigur Ars­en­al í tit­il­bar­átt­unni Arsenal vann hádramatískan sigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og náði fimm stiga forystu á Man City í titilbaráttunni. Jöfnunarmark var dæmt af West Ham í uppbótartíma eftir langa skoðun skjádómara. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Finnland Ein fjöl­farn­asta gatan verður að grænu svæði Borgarstjórn Helsinki samþykkti að breyta götunni framan við lestarstöðina í grænt svæði með göngugötu. Andstæðingar vilja meina að þar sé vegið að réttindum ökumanna. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Banda­rísk­ir far­þeg­ar Hondi­us fara ekki endi­lega í sótt­kví Yfirmaður sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna segir að Bandaríkjamenn sem voru um borð í hollenska farþegaskipinu Hondius verði ekki endilega settir í sóttkví. „Þetta er ekki covid,“ sagði hann í viðtali við CNN í dag. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Ný­lið­ar ÍBV enn með fullt hús stiga Hans Steinar Bjarnason Nýliðar ÍBV í Bestu deild kvenna í fótbolta eru óstöðvandi í upphafi Íslandsmótsins. ÍBV vann 2-0 sigur á Þór/KA í Eyjum í dag og hefur unnið alla fjóra leikina sína í deildinni. Allison Grace Lowrey kom ÍBV yfir á 30. mínútu í 1-0 og Olga Sevcova skoraði seinna markið á 69. mínútu. Kristín Klara Óskarsdóttir leikmaður ÍBV. RÚV / Mummi Lú Í hinum leik dagsins vann FH 2-1 útisigur á Stjörnunni. Deja Sandoval og Hafrún Birna Helgadóttir skoruðu mörk FH en Hulda Hrund Arnarsdóttir minnkaði muninn fyrir Stjörnuna í uppbótartíma. Þetta voru fyrstu leikir fjórðu umferðar sem lýkur á morgun með þremur leikjum. Breðablik - Valur Fram - Víkingur Þróttur - Grindavík/Njarðvík Staðan í deildinni Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti ÍBV fær sekt fyrir „víta­verða“ hegðun áhorf­anda Handknattleiksdeild ÍBV þarf að greiða 150 þúsund króna sekt vegna fordómafullrar hegðunar áhorfanda á leik ÍBV og Vals í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna sl. þriðjudag. Áhorfandinn söng úr stúkunni með niðrandi hætti um markvörð Vals. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Bið­tími eftir inn­lögn á Vogi stytt­ist um þriðj­ung Breytt þjónustuskipulag og áhersla á göngu- og dagdeildir og snemmtæka íhlutun hafa leitt til styttri biðtíma eftir innlögn á sjúkrahúsinu Vogi, segir forstjóri SÁÁ. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Fjöldi nýrra starfa í far­vatn­inu fyrir norðan Fjöldi nýrra starfa er í farvatninu á Norðurlandi vegna uppbyggingar gagnavera. Sveitarstjórar taka vel í áformin. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Fyrstu far­þeg­arn­ir af Hondi­us fljúga til síns heima Mikill viðbúnaður er á spænsku eyjunni Tenerife þar sem verið er að flytja farþega á skemmtiferðaskipinu Hondius frá borði. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hveragerðisbær Tæp­lega fjórar millj­ón­ir króna kostar að hreinsa pípu­org­el Hvera­gerð­is­kirkju Pípuorgelið í Hveragerðiskirkju safnar ryki og kostar það tæplega fjórar milljónir króna að hreinsa það. Nokkrir tónleikar hafa verið haldnir síðustu vikur í kirkjunni þar sem allur ágóði hefur runnið til hreinsunar á orgelinu. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Ótíð í víti: „Maður er al­gjör­lega sleg­inn“ Gagnrýnendur Kiljunnar segja Ótíð í víti: Lífsreynslusögu eftir Gyrði Elíasson vera merkilega og áhrifamikla bók sem gengur nærri höfundinum. Hann lýsi af miskunnarleysi þunglyndi sínu og sjálfsvígstilraunum og reyni að koma líðan sinni í orð. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Líbanon Hart barist í Líban­on þrátt fyrir vopna­hlé – 39 drepn­ir í loft­árás­um í gær Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Að minnsta kosti 39 voru drepnir í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í gær, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti landsins. Árásir hafa gengið á víxl milli hersins og Hezbollah-samtakanna, þrátt fyrir að vopnahlé hafi verið milli Ísraels og Líbanon síðan 16. apríl. Ísraelsher hefur beint árásum sínum á innviði og fólk tengt Hezbollah-samtökunum. Þau segjast hafa gert drónaárásir á ísraelska hermenn í suðurhluta landsins sem viðbragð við loftárásunum. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneyti Líbanons hafa rúmlega 120 verið drepnir í loftárásum Ísraelshers í síðustu viku og í morgun hafi minnst tveir látist í loftárásum Ísraelshers og fimm særst. Íbúar leita að fólki á lífi í húsarústum í þorpinu Saksakieh í suðurhluta Líbanon, í kjölfarið á loftárás Ísraelshers 9. maí 2026. AP / Mohammed Zaatari Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Flóahreppur Íbúar Flóa­hrepps svara könnun um sam­ein­ingu sam­hliða sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um Íbúar Flóahrepps greina frá afstöðu sinni til sameiningar við önnur sveitarfélög á samhliða því að þeir skila inn atkvæði sínu í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Núverandi oddviti sagði í haust að sveitarfélagið stæði sterkt á eigin fótum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Af­lýstu flug­ferð­um því engir flug­menn hlupu í skarð­ið Aflýsa þurfti tveimur flugferðum frá Íslandi síðustu daga vegna manneklu. Reynt er að tryggja að aldrei þurfi að grípa til þess en ekki er hægt að koma alfarið í veg fyrir það, segir Icelandair. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Neyð­ar­lok­un á bráða­mót­töku í Krist­i­an­stad – Þrír grun­að­ir um mann­dráp Maður lést af alvarlegum stunguáverkum eftir átök í miðborg Kristianstad í gærkvöld. Þrír hafa verið handteknir. Uppnám varð á bráðamóttöku eftir komu mannsins sem ráðist var á. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Hlaup Hlynur á næst­besta tíma Ís­lend­ings í mara­þoni: „Eins og að fá hníf í magann“ Hlynur Andrésson var nálægt því að slá Íslandsmet sitt í maraþonhlaupi þegar hann kom í mark á 2:15:30 í Kaupmannahafnarmaraþoninu í dag. Hann var tæpum tveimur mínútum frá meti sínu frá 2021. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menntamál „Myndi aldrei senda barnið mitt í heima­vist“ Reynsla fólks af því að fara barnungt í heimavistarskóla er afar misjöfn. Fyrir marga var það þroskandi og skemmtileg reynsla meðan aðrir glíma enn við afleiðingar þess að hafa þurft að fara alltof snemma að heiman. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fyrsti hópur fólks farinn frá borði Hollenska skemmtiferðaskipið Hondius er komið til Tenerife. Hantaveira greindist í fólki um borð í skemmtiferðaskipinu fyrr í vikunni og því fær skipið ekki að leggjast að bryggju. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Stór­auk­in skipa­um­ferð á Kaspía­hafi Skipaumferð á stærsta stöðuvatni heims hefur stóraukist á síðustu mánuðum vegna viðskiptaþvingana og stríðsátaka í Úkraínu og Mið-Austurlöndum. Skip slökkva ítrekað á gervihnattastaðsetningarbúnaði svo erfitt er að rekja ferðir þeirra. 10. maí 2026 kl. 8:14ERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Maduro farinn en lítið breytt Daglegt líf almennings í Venesúela hefur lítið breyst eftir að Bandaríkjaher handtók Maduro í byrjun árs. Fólk á enn vart til hnífs og skeiðar og ekki hefur enn verið tilkynnt hvenær kosningar verða haldnar. Fjallað er um málið í Heimskviðum. 10. maí 2026 kl. 7:42INNLENDAR FRÉTTIR Veður Rign­ing víða en þurrt fyrir austan Veðurspá Veðurstofu Íslands gerir ráð fyrir þurru veðri á austanverðu landinu en votviðri annars staðar. 10. maí 2026 kl. 6:17ERLENDAR FRÉTTIR Síle Jarð­skjálfti af stærð­inni 5,8 Brynja Dögg Friðriksdóttir Biobio svæðið í Mið-Síle. Google map Jarðskjálfti af stærðinni 5,8 varð í Biobio í Mið-Chile í gærkvöld að staðartíma, samkvæmt norska ríkisútvarpinu NRK. Skjálftinn átti upptök á 23 kílómetra dýpi, samkvæmt Evrópsku jarðskjálftamiðstöðinni (EMSC). Ekki hafa borist fréttir af manntjóni eða eyðileggingu á innviðum. Jarðskjálftar eru tíðir á Biobio-svæðinu. Árið 1960 fórust þar 2.000 manns í stærsta skráða jarðskjálfta sögunnar, sem mældist 9,5 að stærð. 10. maí 2026 kl. 5:43INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þrjú ung­menni á skemmti­stað í fylgd full­orð­ins Fullorðinn einstaklingur var handtekinn á skemmtistað í miðbænum í gærkvöld eða nótt en með honum voru þrír undir aldri, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 10. maí 2026 kl. 3:57ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Þýska­land og Kanada ætla að auka sam­starf milli þjóð­anna Brynja Dögg Friðriksdóttir Varakanslari Þýskalands og fjármálaráðherra Lars Klingbeil. EPA / CLEMENS BILAN Stjórnvöld í Kanada og Þýskalandi ætla að auka samstarf milli þjóðanna. Þetta tilkynnti Lars Klingbeil, varakanslari Þýskalands og fjármálaráðherra, eftir fund með Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í Toronto í Kanada í gær. Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá. Klingbeil segir að samstarfið verði á sviði gervigreindar, orkumála, mikilvægra hráefna og verkefna á sviði varnarmála. Varakanslarinn hefur einnig lagt til að Kanadamenn kaupi kafbáta af Þjóðverjum. 10. maí 2026 kl. 2:30ERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Segir litlar líkur á að íbúar Ten­eri­fe smit­ist af hant­a­veiru Framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar kom til Tenerife í gær. Hann segir að spænsk yfirvöld hafi vandað

Share this article