Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

KA fór upp fyrir ÍBV með sigri

  • What: A fire broke out near Elliðavatn, Guðmundarlundi, and Þingahverfi, requiring a large response.
  • Impact: The fire's extent increased throughout the day, necessitating the deployment of all available resources to combat it.
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 2 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti KA fór upp fyrir ÍBV með sigri Jóhann Páll Ástvaldsson Logi Gautason. Rúv / Mummi Lú KA vann 29-28 sigur gegn ÍBV í efstu deild karla í handbolta. Einar Rafn Eiðsson fór fyrir KA mönnum með níu mörk úr ellefu skotum en auk þess var hann með sjö stoðsendingar. Ágúst Elís Björgvinsson varði 15 skot fyrir KA og var með 34,9% vörslu. Hákon Daði Styrmisson og Andri Erlingsson voru með sjö mörk hvor fyrir ÍBV. ÍA leiddi 20-24 þegar 13 mínútur voru eftir en KA var sterkari á lokakaflanum. KA fer upp í 5. sæti með 24 stig en ÍBV er í 5. sæti með 23. Fyrir 41 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Senda allt sitt lið í að berj­ast við sinu­elda Eldur sem kviknaði í sinu við Elliðavatn nærri Guðmundarlundi og Þingahverfi hefur magnast eftir því sem liðið hefur á daginn. Upphaflega fór einn bíll af stað en eftir að umfangið jókst var allt tiltækt lið sent á staðinn til að berjast við eldinn. FRÉTTAVAKT Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Hringa­vit­leysa með VAR og MacAllis­t­er lauk með sigri Liver­pool Jóhann Páll Ástvaldsson MacAllister fagnar marki sínu. IMAGO Liverpool vann dramatískan 0-1 sigur gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Alexis MacAllister skoraði mark á 89. mínútu sem var dæmt af með VAR-myndbandsdómgæslu vegna hendi. Argentínumaðurinn gafst þó ekki upp og skoraði aftur. VAR-myndbandsdómgæslan kom þá aftur til sögunnar til að skoða hvort Virgil van Dijk væri mögulega rangstæður. Að lokum stóð markið og Liverpool-menn gátu fagnað. Liverpool er nú með 45 stig í 6. sæti en Forest er í 17. sæti með 27 stig. Önnur úrslit: Crystal Palace 1 - 0 Wolves Sunderland 1 - 3 Fulham Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Verðum að senda allt sem við eigum í þetta og meira til Slökkviliðið hefur sent nokkra bíla í Heiðmörk til að berjast við sinueld nærri Elliðavatni. Svæðið sem brennur hefur stækkað og er erfitt viðureignar. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Grænland Niel­sen við Trump: „Það er nei takk héðan“ Formaður landsstjórnar Grænlands afþakkar sjúkrahússkip sem Donald Trump segist hafa sent til landsins. Biður hann um að hafa samband frekar en kasta yfirlýsingum fram á samfélagsmiðlum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Sinu­eld­ur við Ell­iða­vatn Þorgils Jónsson Þessi mynd var tekin á vettvangi í dag. Mynd / Martin Meyer Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er komið að Elliðavatni vegna tilkynningar um sinubruna. Viðmælandi fréttastofu á varðstofu sagði að upphaflega hefði mannskapur frá einni stöð verið kallaður á staðinn en nú hafi verið kallaður út aukamannskapur frá annarri stöð. Hann bætti við að menn á vettvangi hefðu hins vegar ekki verið svartsýnir um að ná tökum á eldinum. Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar And­ers­son náði fram hefnd­um: „Eins og hún sé í an­n­arri íþrótt“ Ebba Andersson sýndi hvað í henni býr og vann með yfirburðum í 50 km skíðagöngu kvenna. Fyrir átta dögum síðan vakti hún heimsathygli eftir ævintýralegt fall sitt í boðgöngu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál „Hélt kannski að ég hefði verið sendur í hel­víti” Móðir drengs sem dvaldi í Bakkakoti upplifir að hún hafi bjargað honum frá frekari skaða en situr eftir með sára minningu um annan dreng sem reyndi að flýja bæinn. Sonur hennar lýsir þrúgandi ofbeldismenningu og kynferðislega þrungnu andrúmslofti. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Ung­verj­ar bæta í hót­an­ir gegn Úkra­ínu Þorgils Jónsson Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands hefur bætt enn í hótanir gegn Úkraínu vegna olíuleiðslu sem liggur gegnum landið og færir Ungverjum og Slóvökum rússneska olíu. Engin olía hefur flætt þá leið í tæpan mánuð. Stjórnvöld í Kænugarði segja það vegna þess að leiðslan hafi skemmst mikið í loftárás Rússa. Ungverjar hótuðu fyrir helgi að stöðva lán ESB til Úkraínu nema opnað verði fyrir leiðsluna á ný og Slóvakar segjast munu loka á neyðarraforku til Úkraínu. Í dag sagði Orban svo að Ungverjar myndu stöðva tuttugasta þvingunaraðgerðapakka ESB gegn Rússum nema olía flæði á ný. Aðgerðir ESB þurfa samþykki allra aðildarríkjanna. AP/Pool AP / Alex Brandon Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Skutu mann sem braust inn í Mar-a-Lago Lífvarðasveit Bandaríkjaforseta skaut mann til bana eftir að hann fór í óleyfi inn á bústað hans í Mar-a-Lago. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Lýðheilsa Skað­leg efni fund­ust í öllum heyrn­ar­tól­um sem voru prófuð Efni sem geta valdið krabbameini, hormónatruflunum og hægt á taugaþroska fundust í öllum heyrnartólum sem prófuð voru í nýrri evrópskri rannsókn. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Rúta með 27 far­þeg­um fór út af á Reyn­is­fjalli og ofan í skurð Lögreglan fékk útkall rétt fyrir hádegi í dag vegna rútu með 27 farþegum sem hafði farið út af á Reynisfjalli. Björgunarsveit var kölluð til sem aðstoðaði farþega og kom þeim í skjól. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Hamas velja leið­toga – tveir koma til greina Enginn óskoraður leiðtogi hefur verið yfir Hamas-samtökunum síðan Ísrael drap tvo með stuttu millibili árið 2024. Nú styttist í að nýr leiðtogi verið valinn. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Mörg þúsund færri frá Banda­ríkj­un­um Farþegum frá Bandaríkjunum fækkaði um 27 prósent í janúar frá því í janúar í fyrra. Brottfarir erlendra farþega frá Keflavíkurflugvelli hafa ekki verið færri í tíu ár fyrir utan covid árin. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Kalla eftir því að óp­í­ó­íða­með­ferð og þrösk­uld­ar við hana verði skoðuð heild­rænt Efnaminna fólk og minnihlutahópar hafa ekki greitt aðgengi að ópíóíðameðferð að mati formanns Matthildar, samtaka um skaðaminnkun. Strangar kröfur og kostnaður geta komið í veg fyrir að fólk með fíknivanda klári meðferð. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Enn berst slökkvi­lið við eld í sinu Brynjólfur Þór Guðmundsson Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur slökkt sinuelda á tveimur stöðum í morgun, þar á meðal á sömu slóðum í Hvalfirði og í gær. Mikið hefur verið um sinubruna síðustu vikur vegna þess mikla þurrks sem einkennt hefur veðurfar í höfuðborginni og nágrenni frá áramótum. Eldarnir hafa bæði verið raktir til þess að fólk fari óvarlega og þess að einhverjir hafi viljandi kveikt í sinu. Vonir standa til að einhver úrkoma verði í dag eða næstu daga sem væti gróður svo síður verði hætta á sinubruna. Brunnin sina. Mynd úr safni. RÚV / Gréta Sigríður Einarsdóttir Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Kajak á hvolfi reynd­ist vera hafís Brynjólfur Þór Guðmundsson Mikið viðbragð var hjá lögreglu og slökkviliði á höfuðborgarsvæðinu fyrir hádegi þegar þeim barst tilkynning um að kajak hefði sést á hvoldi í Skerjafirði. Lögreglumenn hófu þegar leit með dróna og slökkviliðsmenn fóru af stað með bát til að geta brugðist við. Leitin leiddi þó í ljós að þarna var engan kajak á hvolfi að finna heldur lítinn hafís sem hafði rekið þangað inn. Var þá ljóst að ekki þyrfti að bjarga neinum úr sjávarháska. Björgunarsveitir voru einnig kallaðar út en afturkallaðar áður en þær komu á staðinn. Slökkviliðsmenn á æfingu í Kópavogshöfn fyrr í febrúar. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Slóvakía Slóvak­ar hóta að slökkva á raf­magni til Úkra­ínu Forsætisráðherra Slóvakíu hótar að loka á neyðarrafmagn til Úkraínu nema opnað verði á flæði rússneskrar olíu gegnum landið. Úkraína kennir Rússum um að hafa skemmt leiðsluna. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Bændur á drátt­ar­vél­um komu björg­un­ar­sveit­um til að­stoð­ar Björgunarsveitir voru kallaðar út um hálf fimm leytið í gær til að aðstoða ökutæki sem höfðu lent í vandræðum undir Eyjafjöllum vegna hríðarveðurs. Greiðlega gekk að leysa úr og bændur komu á vinnuvélum til aðstoðar. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Svarar Trump án þess að nefna á nafn Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur svarar yfirlýsingum Bandaríkjaforseta um sjúkraaðstoð til Grænlendinga óbeint. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Skaf­renn­ing­ur undir Eyja­fjöll­um Veðurstofa Íslands varar við hríðarveðri í Mýrdal, á Mýrdalssandi og undir Eyjafjöllum fram eftir morgni sem getur valdið samgönguerfiðleikum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá Fram­hlaup jökla ógnar fólki og inn­við­um Ný fræðigrein segir frá því að loftslagsbreytingar valdi því að erfiðara sé að spá fyrir um framhlaup jökla. Þau geta ógnað fólki og innviðum. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Það er enginn hérna sem talar um þetta“ Sprengja sem sprakk á Austurlandi fyrir áttatíu árum kostaði fjögur mannslíf. Lítið sem ekkert hefur verið fjallað um atburðinn enda bar fólk yfirleitt harm sinn í hljóði á þessum tíma og minna er vitað um áhrif áfalla á líf þeirra sem eftir lifðu. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar 93 ára Jak­ob­ína heill­ar heims­byggð­ina Hin 93 ára Jakobína Valdís Jakobsdóttir hefur vakið mikla athygli á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Jakobína keppti fyrst íslenskra kvenna á Vetrarólympíuleikum í Cortina árið 1956 og er þar nú stödd. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Dansk­ir her­menn fluttu veikan banda­rísk­an kaf­báts­mann til Nuuk Markús Þ. Þórhallsson Danskir hermenn sóttu skipverja með þyrlu um borð í bandarískan kafbát og komu honum undir læknishendur í Nuuk eftir að hann veiktist alvarlega. Danskur hermaður gengur brott frá stjórnstöð hersins í Nuuk. AP / Evgeniy Maloletka Frá þessu var greint á Facbook síðu Arktisk kommando, sem stjórnar aðgerðum danska hersins á norðurslóðum. Hvorki hefur verið greint frá hvað amaði að manninum né á hvaða ferðalagi kafbáturinn var. Ljósmyndir á samfélagsmiðlum sýna kafbát dóla í hálfu kafi undan ströndinni við Nuuk. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir sjúkraskip á leið til Grænlands að sinna bágstöddum í samvinnu við erindrekann Jeff Landry. Hann birti gervigreindarmynd því tengda á samfélagsmiðlinum Truth Social,. 22. febrúar 2026 kl. 7:00INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Einn gistir fanga­k

Share this article