Spennan var gríðarleg í einvígi KA og ÍBV í úrslitakeppni úrvalsdeildar karla í handbolta í dag. KA vann fyrsta leikinn í Vestmanneyjum og á lokamínútunni í dag í stöðunni 24-24 á Akureyri varði Ágúst Elí Björgvinsson í marki KA vítakast. KA fór í sókn en Bjarni Valdimarsson fékk dæmdan á sig ruðning og ÍBV fékk annað tækifæri til að komast yfir. Aftur varði Ágúst Elí þegar 21 sekúnda var eftir. Dagur Gautason kom svo KA yfir í 25-24 og Eyjamenn höfðu sjö sekúndur til að jafna og fá framlengingu. En Ágúst Elí varði enn einu sinni og KA vann því 25-24 og er komið í undanúrslit. Ágúst Elí lokaði marki KA á æsispennandi lokamínútunni gegn ÍBV.Mummi Lú