Félagsfundur Drangeyjar-smábátafélag Skagfjarðar sem haldinn var 10. maí síðastliðinn mótmælir harðlega því hvernig staðið er að úthlutun almenns byggðakvóta 2026 á Sauðárkróki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Drangey. Öll skerðingin bitni á útgerðum smábáta „Telur félagið að innviðaráðuneytið hafi með framgöngu sinni farið á svig við jafnræðisreglu stjórnsýslulaga. Þá telur fundurinn að sveitarstjórn Skagafjarðar hafi með tillögum sínum til ráðuneytisins um úthlutunarreglur mismunað stórlega sjávarútvegsfyrirtækjum á Sauðárkróki, þar sem öll skerðing (ca. 30%) á byggðakvóta til staðarins í ár hafi verið tekin út á útgerðum smábáta,“ segir í ályktun félagsfundar Drangeyjar. Grafi undan lýðræðinu Loks segjast fundarmenn telja „að þjónkun og undanlátsemi sveitarstjórnar við FISK-Sefood ehf sýni berlega hvernig framganga stórfyrirtækja í sjávarútvegi geti grafið undan lýðræði í þeim sveitarfélögum sem þau starfa í,“ eins og segir í ályktuninni.