Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þrengi að Skagfirðingum án nútímalegrar hafnar

Read Full Article →

Eitt stærsta hagsmunamál Skagfirðinga nú um stundir er ný ytri höfn á Sauðárkróki vegna mjög vaxandi umsvifa og ákalli um að geta tekið á móti skipum sem rista dýpra, meðal annars vegna breyttrar hönnunar skipa í tengslum við orkuskipti. Þetta kemur fram í umfjöllun sveitarstjórnar Skagafjarðar um samgönguáætlun innviðaráðherra fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030. Sveitarstjórnin segir höfnina á Sauðárkróki vera lífæð allrar atvinnustarfsemi í Skagafirði. „Hún leikur óumdeilt lykilhlutverk fyrir bæði aðföng og fráflutning atvinnulífsins og er í raun hjarta þess og lunga.“ „Slíkt má einfaldlega ekki gerast“ Þá segir sveitarstjórnin að gríðarleg verðmæti séu í því fólgin fyrir Sauðárkrók og um leið Skagafjörð að tryggja atvinnulífi sínu sterka innviði til þess að koma afurðum sínum á markað bæði hérlendis og erlendis. „Án samkeppnishæfrar og nútímalegrar hafnaraðstöðu þrengir mjög að öllum aðgangi okkar að innlendum og erlendum mörkuðum. Slíkt má einfaldlega ekki gerast,“ segir sveitarstjórnin og bendir á veruleg áform og eflingu atvinnulífs á Sauðárkróki sem knýi á um framkvæmdina, meðal annars nýleg opnun fiskmarkaðar á Sauðárkróki, áform um nýja hátæknifiskvinnslu FISK Seafood, áform um stækkun Steinullar hf. og stækkun á starfsemi Dögunar rækjuvinnslu. Brimvarnargarður kosti 915 milljónir „Framkvæmdir við nýja ytri höfn voru boðnar út á síðastliðnu ári og eru hafnar. Er um gríðarlega ánægjulegan áfanga að ræða. Í tillögu að samgönguáætlun er getið að heildarkostnaður við brimvarnargarðinn sjálfan sé áætlaður 915 milljónir króna. Veittar eru fjárveitingar til hans á árunum 2025-2028 sem nema 484,1 milljónum króna,“ segir sveitarstjórnin. Áætlun 880 milljónir en fjárveitingin 158,6 milljónir Einnig sé inni í samgönguáætluninni fjárveiting til stálþils og þekju fyrir nýja garðinn. „Þar er heildarkostnaðaráætlun metin 880 milljónir króna en fjárveiting er aðeins 158,6 milljónir króna og ná þær til áranna 2029 og 2030. Flýta þarf þessari framkvæmd og tryggja fjárveitingu til heildarframkvæmdarinnar þannig að höfnin verði fullkláruð. Öðruvísi er ekki hægt að taka hana í notkun,“ segir sveitarstjórn Skagafjarðar.

Share this article