Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þrjár nýjar vatnsrennibrautir rísa á Sauðárkróki

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Skagafjörður Þrjár nýjar vatns­renni­braut­ir rísa á Sauð­ár­króki Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Framkvæmdir eru hafnar við byggingu þriggja nýrra vatnsrennibrauta í Sundlaug Sauðárkróks. Stærsta rennibrautin verður 65 metra löng með slaufum og ljósagöngum. Rennibrautarturninn verður 12 metra hár, upphitaður og lýstur. „Sannkallað kennileiti sem mun setja svip sinn á bæinn,“ segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook. Þar segir að ef allt gangi eftir geti Skagfirðingar rennt sér í glænýjum rennibrautum strax í júní. Skagafjörður Fyrir 25 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Isavia ANS verður Avians Brynjólfur Þór Guðmundsson Dótturfélag Isavia sem sinnir flugumferðarstjórn hefur tekið upp nýtt nafn. Það skiptir Isavia ANS út fyrir Avians. Tilgangurinn með nýju nafni og vörumerki er sagður sá að aðgreina starfsemina frá móðurfélaginu og styrkja stöðu félagsins á alþjóðlegum vettvangi. Avia hluti nafnsins vísar til flugs og ans er skammstöfunin á air navigation services, flugleiðsöguþjónustu. Kjartan Briem, framkvæmdastjóri Avians. Aðsend Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Óvið­eig­andi hegðun gegn leik­skóla­barni á Ak­ur­eyri til rann­sókn­ar lög­reglu Akureyrarbær hefur óskað eftir því við lögreglu að hefja rannsókn á óviðeigandi hegðun leikskólastarfsmanns gagnvart barni á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri haustið 2024 vegna nýrra upplýsinga. Fundað var með foreldrum í gær. Fyrir 37 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Saka Rússa um að beina árásum að al­menn­um borg­ur­um Grétar Þór Sigurðsson Slökkviliðsmenn reyna að slökkva eld í fjölbýlishúsi í Zaporizhzhia sem varð fyrir drónaárás í nótt. AP / Kateryna Klochko Fimm voru drepnir og á þriðja tug særðust í árásum Rússa á Úkraínu í nótt. Andriy Sybiga, utanríkisráðherra Úkraínu, sakar Rússlandsher um að hafa beint árásum sínum að almennum borgurum að ásettu ráði. Stjórnvöld í Kænugarði saka Rússa um að hafa beint 390 drónum og 34 flugskeytum gegn landinu í árásinni sem er sú umfangsmesta um nokkurra vikna skeið. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur sett friðarviðræður úr skorðum en Bandaríkin hafa haft þar milligöngu. Sendinefnd frá Kænugarði hélt til Bandaríkjanna um helgina til að reyna að blása nýju lífi í viðræðurnar en án teljandi árangurs. Fyrir 44 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk „Við lifum á tímum sem eru eins og hálf­gerð vís­inda­skáld­saga“ Clement Kjersgaard, þáttastjórnandi og stjórnmálaskýrandi hjá DR, segir kosningabaráttuna í Danmörku hafa að mjög litlu leyti snúist um alþjóðamálin þrátt fyrir að Danmörk hafi verið áberandi á alþjóðasviðinu undanfarnar vikur. Fyrir 53 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Sam­fylk­ing­in dalar enn Fylgi Samfylkingarinnar er komið niður í 25,5 prósent, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu, og hefur ekki mælst minna í eitt ár. Miðflokkurinn mælist enn næst stærstur en hefur minnkað í tveimur könnunum í röð. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Ný bál­stofa í Gufu­nesi tekin í gagnið í lok næsta árs Til stendur að opna nýja bálstofu og líkhús í Gufunesi í lok næsta árs. Framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma segir verkefnið fullfjármagnað. Útboði á nýjum brennsluofnum lýkur innan mánaðar. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Eld­flauga­árás á Tel Aviv Brynjólfur Þór Guðmundsson Fjórir særðust lítillega í eldflaugaárás Írana á Ísrael í morgun. Ein eldflaugin lenti í verslanahverfi í Tel Aviv. Íranskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að ísraelskar og bandarískar herþotur hefðu ráðist á gasleiðslu og tvær birgðastöðvar. EPA / ABIR SULTAN Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Enginn getur haft vond áhrif á mig ef ég ber fulla ábyrgð á mér“ Ragnhildur Gísladóttir samdi við sjálfa sig um að standa sig gagnvart sér. Þegar hún var yngri voru óþægilegir hlutir sjaldan útskýrðir sem gerði hana óörugga og er mögulega ástæða þess að hún stamaði sem barn og gerir jafnvel enn. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Stefnt að því að af­létta rým­ingu í há­deg­inu Óvissustig er vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum og hættustig á Seyðisfirði. Fjöldi vega er enn lokaður eftir óveður gærdagsins og næturinnar. Gular viðvaranir falla úr gildi eftir því sem líður á morguninn. Rýmingum á Seyðisfirði verður líklega aflétt í hádeginu. FRÉTTAVAKT Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bryn­dís Gunn­laugs­dótt­ir bæj­ar­stjóra­efni Sam­fylk­ing­ar í Ölfusi Markús Þ. Þórhallsson Samfylkingin og félagar í Ölfusi hyggjast ráða Bryndísi Gunnlaugsdóttur sem bæjarstjóra nái framboðið þeim árangri sem þarf. Aðsend / Samfylkingin og félagar Ölfusi Samið hefur verið við Bryndísi Gunnlaugsdóttir um að verða bæjarstjóraefni Samfylkingarinnar og félaga í Ölfusi. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu undirritaðri af Gunnsteini R. Ómarssyni oddvita og þeim sem skipa 2. til 4. sæti á lista framboðsins. Bryndís er 45 ára lögfræðingur og sat í bæjarstjórn Grindavíkur í 5 ár, þar af 4 sem forseti bæjarstjórnar. Hún hefur starfað hjá KPMG og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, hefur kennt sveitarstjórnarrétt og stjórnsýslu við tvo háskóla og er mikil körfuboltakona. Bryndís býr ásamt eiginmanni og dóttur í Hveragerði en er sögð munu flytja til Þorlákshafnar verði hún ráðin bæjarstjóri Ölfuss. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti 40 ár frá því Pétur Guð­munds fór í Lakers — „Aldrei liðið sem ég hafði búist við að komast að hjá“ Í ár eru 40 ár frá því að körfuboltamaðurinn Pétur Guðmundsson gekk til liðs við stórliðið Los Angeles Lakers. Showtime Lakers sýningin stóð þar sem hæst. Pétur sagði sögu sína í þættinum Góð íþrótt, gulli betri. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gular við­var­an­ir og vega­lok­an­ir í morg­uns­ár­ið Veðrið sem geisaði í gær gengur niður með morgninum. Síðasta gula viðvörunin fellur úr gildi á hádegi. Vegir eru víða lokaðir í morgunsárið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísrael skýtur skot­flaug­um að Beirút og Íranir að Ísrael Ísraelsher skaut eldflaugum á úthverfi í suðurhluta Beirút í nótt. Ísraelar tóku tvo Hezbollah-liða höndum innan landamæra Líbanon. Íranir gerðu eldflaugaárásir á Ísrael í morgun. Bandaríkin segjast hafa grandað 140 írönskum skipum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Spenn­andi kosn­ing­ar þar sem mjótt verður á munum Danskir kjósendur ganga að kjörborðinu í dag. Kjörstaðir verða opnaðir klukkan sjö að íslenskum tíma og kjörfundur varir í 12 klukkustundir. Skoðanakannanir benda til að mjög mjótt verði á munum. Vænta má lokaniðurstaðna í kvöld eða næstu nótt. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Öld­unga­deild­in stað­fest­ir út­nefn­ingu Mark­waynes Mullen Útnefning nýs ráðherra heimavarna Bandaríkjanna hefur verið staðfest í öldungadeild þingsins. Hann er dyggur samherji forsetans og hefur boðað breytingar. Demókratar hafa haldið aftur af fjárveitingum vegna harðrar framgöngu ICE. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Þrír drepn­ir í loft­árás­um á tvær borgir í Za­por­izh­ia Markús Þ. Þórhallsson Þrír voru drepnir og fjórtán særðust í loftárás Rússlandshers á borgirnar Poltava og Zaporizhia í nótt. Loftvarnaflautur ómuðu um nær gjörvalla Úkraínu. Roskinn maður gengur hjá fjölbýlishúsi skemmdu eftir loftárásir. Myndin er úr safni. EPA / KATERYNA KLOCHKO Héraðsstjórinn Ivan Fedorov segir í færslu á samskiptamiðlinum Telegram að sex fjölbýlishús, tvö einbýlishús, verslanir og iðnaðarhúsnæði hafi skemmst verulega í árásunum. Hann sagði björgunarsveitir að störfum. Volodymyr Zelensky forseti hafði í daglegu ávarpi sínu varað við stórfelldum árásum Rússa, sem hann byggði á ítarlegri eftirgrennslan leyniþjónustunnar. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Bill Cosby dæmdur til að greiða háar bætur fyrir rúm­lega fimm­tíu ára gamalt kyn­ferð­is­brot Dómstóll í Kaliforníu hefur gert Bill Cosby að greiða bætur til konu sem hann braut gegn kynferðislega fyrir 54 árum. Lögmaður gamanleikarans segir hann munu áfrýja málinu. Hann var látinn laus úr fangelsi fyrir fjórum árum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Evr­ópu­sam­band­ið og Ástr­al­ía gera frí­versl­un­ar­samn­ing eftir ára­lang­ar við­ræð­ur Átta ára samningaviðræðum um fríverslun milli Ástralíu og Evrópusambandsins er lokið með undirritun samnings þess efnis. Nær allir tollar verða felldir niður, sem á að auka viðskipti verulega. Meiri samvinna í varnarmálum var einnig staðfest. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kólumbía Á sjö­unda tug lét lífið þegar her­flug­vél hrap­aði í Amazon Á sjöunda tug lét lífið þegar flugvél Kólumbíuhers hrapaði í flugtaki frá litlum flugvelli í Amazon. Tugir slösuðust. Rannsókn á tildrögum slyssins er þegar hafin. Kólumbíuforseti segir tímabært að endurnýja tækjabúnað hersins. 24. mars 2026 kl. 0:23INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Stjórn­mála­menn sem vilji mæta þörfum borg­ar­búa og þeir sem vilji breyta þeim Einar Þorsteinsson, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Kristinn Jón Ólafsson og Ari Edwald ræddu borgarlínuna, þarfir borgarbúa, húsnæðismarkaðinn og fleira í Silfrinu í kvöld. 23. mars 2026 kl. 21:41ÍÞRÓTTIR Íþróttir Marika og Gunnar Ís­lands­meist­arar í keilu Íslandsmóti einstaklinga í keilu án forgjafar lauk í Egilshöll í kvöld. Gunnar Þór Ásgeirsson vann sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í karlaflokki og Marika Lönnroth er tvöfaldur Íslandsmeistari í ár í kvennaflokki, því hún vann líka með forgjöf. 23. mars 2026 kl. 21:25INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Vel mögu­legt að stýri­vext­ir verði hækk­að­ir aftur Seðlabankastjóri segir vel mögulegt að stýrivextir verði hækkaðir aftur en síðasta stýrivaxtaákvörðun hafi verið þung. Hann hefur áhyggjur af mögulegum áhrifum þess að verkalýðsfélög virkji forsenduákvæði í kjarasamningum í haust en kveðst bjartsýnn. 23. mars 2026 kl. 21:18ERLENDAR FRÉTTIR Eþíópía Minnst 1.300 dáið úr hungri á þremur árum Talið er að minnst 1.300 manns hafi dáið úr hungri í flóttamannabúðum í Tigray-héraði í Eþíópíu. Þangað leitaði fó

Share this article