Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hillir undir menningarhús á Sauðárkróki

Read Full Article →

Menning | mbl | 11.4.2026 | 11:38 Hillir undir menningarhús á Sauðárkróki Svona kemur menningarhús á Sauðárkróki til með að líta út, miðað við tillögu Arkís arkitekta. Tölvumynd/Arkís arkitektar Páll Friðriksson Sauðárkróki Setja bókamerki Sveitarfélagið Skagafjörður hefur uppi áform um að reisa nýtt menningarhús á Sauðárkróki en fyrir liggur samkomulag um framkvæmdina á milli sveitarfélagsins og ríkisins. Ríkið hefur boðist til að greiða um 60% og afgangurinn lendir á sveitarfélaginu. Tillaga að útliti hússins hefur verið kynnt, sem unnin var af Arkís arkitektum. Á húsið að koma á milli Safnahússins og Sundlaugar Sauðárkróks, á Flæðunum svonefndu. Tillaga kom frá fulltrúa minnihluta í sveitarstjórn um íbúakosningu um framkvæmdina, en meirihlutinn hafnaði þeirri tillögu. Allt frá því að hugmyndir kviknuðu um uppbyggingu menningarhúsa í Skagafirði hefur ýmislegt áunnist en annað dregist vegna ófyrirséðra atvika. Menningarhúsið Miðgarður í Varmahlíð hefur sannað gildi sitt og nú sér fyrir endann á langri sögu um fullnustu samnings milli sveitarfélags og ríkis um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki. Verklok áætluð í lok 2027 „Menningarhús á Sauðárkróki, miðstöð menningar og sviðslista, á sér sögu til tveggja áratuga. Allt byrjaði þetta árið 1999 og var menningaruppbygging á Sauðárkróki hluti af stærri hugmynd sem byrjaði með endurnýjun á Miðgarði í Varmahlíð. Eftir að Miðgarður var endurgerður kom fjármálahrunið, ríkið óskar eftir því að bíða með seinni áfanga sem var menningaruppbygging á Sauðárkróki,“ útskýrir Guðlaugur Skúlason, formaður byggðarráðs Skagafjarðar, við Morgunblaðið. Verkefnið var svo endurvakið 2017 og ári síðar undirrituð viljayfirlýsing. Með samningi, sem undirritaður var vorið 2023 á milli ríkisins og sveitarfélagsins, er bygging Menningarmiðstöðvar á Sauðárkróki komin í fastan farveg og segir Guðlaugur verklok áætluð í lok árs 2027. „Þessi framkvæmd mun stórbæta aðstöðu safna okkar Skagfirðinga og koma safnkosti sem er í húsnæði til bráðabirgða í fullkomið varðveisluhús sem uppfyllir öll þau skilyrði sem þarf til varðveislu sögu og menningararfs okkar,“ segir Guðlaugur, aðspurður hvernig hann sjái nýtt menningarhús uppfylla þær væntingar sem til þess eru gerðar. „Safnahúsið og starfsemi þar hefur verið í mikilli sókn með alls konar viðburðahaldi og nýbreytni. Mun betri aðstaða fyrir starfsfólk og gesti safna ýtir heldur betur undir það frábæra starf sem nú þegar er unnið að þar.“ Guðlaugur bendir einnig á að ný sýningarrými veiti kærkomin tækifæri til að sýna listaverk í eigu Listasafns Skagfirðinga sem eru í geymslu og að auki hafi aðrir listamenn sett upp sýningar á verkum sínum þar. „Sviðslistasalur mun síðan sinna fjölbreyttu starfi leikfélagsins, skóla, tónlistar- og öðrum viðburðum. Einnig verður þar aðstaða til að setjast niður og fá sér kaffi og bakkelsi. Því mun lífið í þessari sannkölluðu menningarmiðstöð vera fjölbreytt og allir eiga eftir að finna eitthvað við sitt hæfi allan ársins hring.“ Fjárfest í menningu Guðlaugur segir breytingar á vinningstillögu hafa verið ýmsar en þó engar stórvægilegar. Ytra skipulag hefur fengið að halda sér að mestu leyti en innra skipulag hefur tekið meiri breytingum. „Þar hefur verið rýnt vel í hlutina með hagaðilum svo hver fermetri er vel nýttur og skipulag hússins verði sem skilvirkast. Við höfum komið með óskir og sýn á hlutina sem Arkís arkitektar hafa leyst einstaklega vel úr. Þeir hafa verið lausnamiðaðir þegar kemur að úrvinnslu á óskum okkar um breytingar og mjög öflugir að svara fyrirspurnum um hitt og þetta í ferlinu.“ Verkefnið gengur samkvæmt áætlun, að sögn Guðlaugs, og starfsmenn Skagafjarðar, í samstarfi við Arkís arkitekta, hafi unnið það áfram. Segir hann að nú, þegar innra og ytra skipulag hússins er að mestu fullmótað, sé unnt að kynna verkefnið með skýrum hætti en á næstu vikum verður framkvæmdin kynnt með myndbandi sem gefur fólki kost á að skyggnast inn í húsið, auk frekara kynningarefnis. Jafnframt styttist í að útboðsgögn verði tilbúin til yfirferðar og þegar þau liggja fyrir, ásamt kostnaðarmati, verður næsta skref að bjóða verkið út. Guðlaugur vill árétta að þetta verkefni snúist ekki eingöngu um nýja byggingu, frekar um framtíðarsýn fyrir samfélagið allt. „Menningarhús verður vettvangur fyrir listir, sögu, fræðslu og mannlíf, þar sem íbúar á öllum aldri og gestir utan héraðs geta komið saman og notið. Við lítum á þetta sem mikilvæga fjárfestingu í menningu, menntun og lífsgæðum í Skagafirði til langs tíma. Þetta er verkefni sem horfir til framtíðar. Það er bæði ánægjulegt og mikilvægt að sjá þetta verkefni nú komast á þann stað að það sé raunverulega að verða að veruleika,“ segir Guðlaugur að lokum. Anddyri menningarhússins verður eitthvað á þessa leið. Tölvumynd/Arkís arkitektar Reiknað er með barnahorni í menningarhúsinu á Flæðunum á Sauðárkróki, á milli sundlaugarinnar og safnahússins. Tölvumynd/Arkís arkitektar Sviðslistasalur í húsinu fyrir leiksýningar, tónleika og aðra viðburði. Tölvumynd/Arkís arkitektar Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað Sorgin er allt um kring Fjörið hefst í kvöld Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Kóngurinn græddi mest á stríðinu Björgvin Halldórsson látinn Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Ástin með flestar tilnefningar Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Forseti Íslands minnist Björgvins Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Kóngurinn græddi mest á stríðinu Björgvin Halldórsson látinn Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Málaði trjáboli með varalitum Sögur af alls konar fólki og lífinu í landinu Björgvin Halldórsson látinn Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ „Ég gef engan afslátt“ Forseti Íslands minnist Björgvins Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað Áhugaverð viðtöl Menning „Þau voru svolítið hneyksluð í fyrstu“ Menning Allt yf­ir­borðs­kennd­ara í LA Menning Fann ung að hún væri öðruvísi í útliti Menning Upplifði hryll­ings­til­finn­ingu Menning Málaði trjáboli með varalitum Mest lesið Í gær Í vikunni Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað Sorgin er allt um kring Fjörið hefst í kvöld Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Kóngurinn græddi mest á stríðinu Björgvin Halldórsson látinn Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Ástin með flestar tilnefningar Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Forseti Íslands minnist Björgvins Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Kóngurinn græddi mest á stríðinu Björgvin Halldórsson látinn Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Málaði trjáboli með varalitum Sögur af alls konar fólki og lífinu í landinu Björgvin Halldórsson látinn Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ „Ég gef engan afslátt“ Forseti Íslands minnist Björgvins Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað Áhugaverð viðtöl Menning Fann ung að hún væri öðruvísi í útliti Menning Varð óvart að söngleik Menning Hvöt og nauðsyn sem yfirtekur allt Menning Sannleikurinn má ekki spilla góðri sögu Menning Óttaðist að missa barnið sitt

Share this article