Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Telja ekki lagalegan grundvöll fyrir íbúakosningu

Read Full Article →

Fimm fulltrúar, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, höfnuðu í vikunni beiðni um íbúakosningu um fyrirhugað menningarhús á Sauðárkróki. Minnihlutinn í sveitarfélaginu er ósáttur við niðurstöðuna og undrar sig á henni. „Já ég er mjög hissa á þessu að þau vilji ekki lofa íbúunum að ákveða þetta. Hvort þetta sé hræðsla um að þetta verði fellt eða hvað,“ segir Sveinn Finster Úlfarsson, fulltrúi Byggðalistans í Skagafirði. Að mati meirihlutans hefði beiðnin um íbúakosningu þurft að koma fram fyrr. Skrifað var undir samkomulag við ríkið í maí 2023 um bygginguna. Ef að efna hefði átt til íbúakosningu um málið hefði þurft að tilkynna um undirskriftarsöfnun innan við fjögurra vikna frá því. Afstaða minnihlutans er hins vegar að nú séu forsendur breyttar, teikningarnar sýni dýrt hús, byggingavísitala hefur hækkað og ekki gert ráð fyrir lóðafrágangi svo dæmi séu nefnd: „Fólk er kannski ekki beint á móti menningarhúsi sem slíku en það er kannski mikið af fólki sem er á móti þessari byggingu. Alltof mikið bruðl. Það á að setja torf á þakið,“ segir Sveinn og vonast til að málinu sé ekki alveg lokið: Já það er bara spurning hvort að þau sem eru með undirskriftarlistann ætli að vísa niðurstöðunni til ráðuneytisins.

Share this article