Bygging menningarhúss á Sauðárkróki er í fullum undirbúningi og áætluð verklok eru í lok árs 2027. Með undirritun samnings sveitarfélagsins við ríkið var byggingin sett í fastan farveg en kostnaðurinn var áætlaður ríflega 1,5 milljarðar króna. Samningurinn við ríkið, sem undirritaður var vorið 2023, kveður á um að ríkið greiði 60% kostnaðarins við bygginguna, eða að hámarki 910 milljónir en sveitarfélagið 40%. Ljóst er að frá þeim tíma sem liðið hefur frá undirritun hefur byggingarvísitala hækkað og búast má við að verkefnið verði dýrara. „Í samningnum er þetta bara föst tala og það er ekki gert ráð fyrir því að hún hækki samkvæmt samningnum. Við erum nú þegar búnir að undirbúa forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar að við munum koma og tala við þá þegar þetta kemst í gang því það er eðlilegt að hlutur ríkisins hækki í það minnsta sem nemur vísitöluhækkuninni frá því það var skrifað undir,“ segir Einar E. Einarsson, forseti sveitastjórnar Skagafjarðar. Ekki einhugur um verkefnið Tekist hefur verið á um verkefnið í sveitarstjórn Skagafjarðar og lögðu fulltrúar Byggðalistans fram tillögu um að efna til íbúakosningar, samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor, þar sem íbúar gætu kosið um hvort halda ætti áfram með verkefnið. Sú tillaga var felld. „Það er klárlega þannig að mikill meirihluti Skagfirðinga styðji þetta verkefni,“ segir Einar og bætir enn fremur við: „Mín upplifun er sú að það sé almenn sátt þegar upp er staðið. Þessi gagnrýni sem er uppi er ekki að öllu leyti, að mér finnst, mjög málefnaleg.“ Sveinn Finster Úlfarsson, fulltrúi Byggðalistans í Skagafirði, segir að ákvörðun meirihlutans um að fella tillöguna séu vonbrigði og mikilvægt sé að hafa íbúa með sér í svona stóru verkefni. Þetta sé það stórt verkefni að það sé ekki hægt að keyra það í gegn korter í kosningar. Hefja framkvæmdir í sumar Verkefnið er ekki nýtt af nálinni en það á rætur sínar að rekja allt til ársins 2007. Með samningnum sem var undirritaður árið 2023 er áætlað að endurbæta Safnahús Skagfirðinga og reisa við það nýbyggingu sem á að hýsa bókasafn, listasafn, skjalasafn, varðveislurými, sýningarsal og aðstöðu fyrir sviðslistir. Vonir standa til að framkvæmdir hefjist í byrjun maí. „Við gerum ráð fyrir að bjóða út jarðvegsvinnuna strax núna í apríl,“ segir Einar E. Einarsson, forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar.