Innlent | mbl | 24.3.2026 | 15:28 Er verið að byggja of mikið? Í erindi Jónasar kom fram að byggingageirinn haldi sjó en er hættur að vaxa í bili. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Beint: Hver er staða íbúðauppbyggingar? Þrjú lúxushús á 33 milljónir Auknar heimildir til að hemja lóðabrask Leiguverð þarf að hækka töluvert » Fleiri tengdar fréttir „Ég hef heyrt því velt upp í umræðunni hvort að þessi stóri lager af nýjum óseldum íbúðum sé ekki bara merki um að við séum að byggja of mikið? Ég myndi svara þeirri spurningu neitandi.“ Þetta sagði Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS), á hádegisfundi þar sem hann fór yfir byggingamarkaðinn eins og hann stendur í dag og hvers má vænta á næstu árum. Rakti Jónas að íbúðaþörf væri ekki það sama og eftirspurn. „Íbúðaþörfin er gríðarlega mikil [...]. Ef við horfum aftur 10- 11 ár í tímann hefur fullorðnum íbúum fjölgað hraðar en íbúðum. Þannig það eru fleiri að keppast um hverja íbúð,“ sagði Jónas. Frétt af mbl.is Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Eiginleikar sem hugnast ekki kaupendum Mikil íbúðaþörf hefur myndast á síðustu árum en stjórnvöldum hefur ekki tekist að byggja í samræmi við hana. Mikil fólksfjölgun og fjölskyldustærð bendir til þess að íbúðaþörf sé mikil, þótt eftirspurnin sé lítil þessa stundina. „Eftirspurnin er lítil enda ræðst hún af öðrum þáttum en bara íbúðaþörf til skamms tíma. Hún ræðst af aðstæðum í efnahagslífinu. Seðlabankinn er að halda niður eftirspurn núna, handstýrt, með háum vöxtum og þröngum lánþegaskilyrðum,“ sagði Jónas. Hann sagði að sérstaklega erfitt reyndist að kaupa nýjar íbúðir í þessu árferði þar sem þær eru oftast dýrari en þær sem eldri eru. Þá hafa aðrir þættir áhrif á dræma sölu nýbygginga t.a.m. eru flestar nýjar íbúðir á þröngu stærðarbili, sem virðist ekki hugnast kaupendum auk þess sem einhverjir eiginleikar íbúðanna virðast ekki hugnast íbúðakaupendum. „Eldri íbúðir, jafnvel þó þær séu dýrari og stærri, seljast betur heldur en nýjar íbúðir sem eru ódýrar,“ sagði Jónas. Jónas Atli Gunnarsson yfirhagfræðingur HMS.á fundinum í dag. mbl.is/Karítas Heldur sjó Í erindi Jónasar kom jafnframt fram að byggingageirinn haldi sjó en sé hættur að vaxa í bili. Könnun Samtaka iðnaðarins, sem var birt í síðasta mánuði, kom fram að verktakar telji að íbúðum í byggingu muni fjölga á næstu tólf mánuðum. Arkitektar og verkfræðistofur spá hins vegar að hægt geti á uppbyggingu á næstu 12 til 24 mánuðum. „Staðreyndin er sú að við erum að ganga í gegnum aðlögunarferli á fasteignamarkaði. Fasteignaverð er að hækka, en þó minna en verðbólga,“ sagði Jónas sem telur að markaðurinn sé að sigla inn í ákveðið jafnvægi á næstunni. Eftirspurn mun ráðast af aðhaldi Seðlabankans á næstunni. Frá fundi HMS. mbl.is/Karítas „Hér er mikilvægt að stjórnvöld hafi augun á boltanum og byggi í samræmi við þörf,“ sagði Jónas. Þá beri sveitarfélög ábyrgð á að lóðaframboð og gjaldtaka sé ekki til þess fallin að draga úr íbúðafjárfestingu. „Ef við gerum þetta allt rétt er vonandi tækifæri til þess að fá einhvers konar stöðugleika á markaðnum á allra næstu mánuðum og árum.“ Frétt af mbl.is Hægir á byggingu íbúða næstu árin Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Beint: Hver er staða íbúðauppbyggingar? Þrjú lúxushús á 33 milljónir Auknar heimildir til að hemja lóðabrask Leiguverð þarf að hækka töluvert » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þessi vilja stýra leik- og grunnskóla Grindavíkur Frá Bayern München til Manchester United? Lögðu öryggið að veði til að koma sjúklingi í skjól Er verið að byggja of mikið? Árásir halda áfram: Engin friður í augsýn Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt innanlandsflug í lamasessi til morguns Hryðjuverkamálið á dagskrá um miðjan maí Flugslys í Kólumbíu – 80 um borð „Ég er harmi slegin“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Gul viðvörun fyrir land allt „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar „Ég er harmi slegin“ „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Nýjast á mbl.is » Þessi vilja stýra leik- og grunnskóla Grindavíkur Frá Bayern München til Manchester United? Lögðu öryggið að veði til að koma sjúklingi í skjól Er verið að byggja of mikið? Árásir halda áfram: Engin friður í augsýn Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Hátt í 100 björgunarsveitarmenn kallaðir út ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Við hvern er verið að semja í Íran? Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Gul viðvörun fyrir land allt „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar „Ég er harmi slegin“ „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni „Fundum manninn hálfsturlaðan“