- What: Increase in unsold housing units in Iceland
- Impact: Real estate market developments in Iceland
Innlent | mbl | 24.3.2026 | 13:00 Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega „Fullkláraðar óseldar íbúðir eru að safnast upp og eru þær orðnar 1.409 talsins, í samanburði við þær þúsund í september.“ mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Beint: Hver er staða íbúðauppbyggingar? Þrjú lúxushús á 33 milljónir Auknar heimildir til að hemja lóðabrask Leiguverð þarf að hækka töluvert Skoða hvort taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi » Fleiri tengdar fréttir Alls eru 8.397 íbúðir í byggingu á landinu öllu, það er að segja íbúðauppbygging þar sem framkvæmdir eru hafnar, auk íbúða sem eru fullbúnar en hafa ekki verið seldar. Fjölgun er á íbúðum sem eru fullbúnar en hafa ekki verið seldar frá íbúðatalningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) frá því í september. Þetta kom fram á fundi HMS þar sem farið var yfir stöðu íbúðauppbyggingar fyrir landið allt. Frétt af mbl.is Beint: Hver er staða íbúðauppbyggingar? 200 íbúðir af 1.000 seldar Fjölgun hefur verið á íbúðum í byggingu á landinu öllu en í síðustu talningu HMS frá því í september voru 7.566 íbúðir í byggingu á landinu öllu, eða 11% aukning. „En þessar niðurstöður gefa ekki alveg rétta mynd á raunstöðu íbúða í byggingu,“ sagði Hugrún Ýr Stefánsdóttir, teymisstjóri fasteignamars og skráningar HMS, á fundinum. Ef teknar eru út fullkláraðar óseldar íbúðir eru 6.988 íbúðir í byggingu á landinu öllu. „Fullkláraðar óseldar íbúðir eru að safnast upp og eru þær orðnar 1.409 talsins, í samanburði við þær þúsund í september. Þetta er gríðarleg aukning í fullkláruðum óseldum íbúðum á einu ári,“ sagði Hugrún. Af þeim þúsund íbúðum sem stóðu tómar í síðustu talningu HMS hafa aðeins 200 verið seldar. „Þetta endurspeglast vel í framboði nýrra íbúða í sölu, sem hefur vaxið verulega frá árinu 2022.“ Mikil uppbygging er á Ártúnshöfða. mbl.is/Sigurður Bogi Dýrt að sitja uppi með fullbúnar íbúðir Þá hefur íbúðum á fyrri framvindustigum fækkað verulega síðustu ár og hafa ekki verið jafn fáar frá því að HMS hóf talningar. Ástæður geta verið margvíslegar en að sögn Hugrúnar er hluti skýringarinnar dræm sala nýbygginga. „Það eru dæmi um að byggingaraðilar setji fyrsta áfanga í sölu og meti svo framhaldið þegar það er komin reynsla á sölu þeirra. Það er líka dýrt að sitja uppi með fullbúnar íbúðir sem ekki seljast.“ Fjölgar mest í Reykjavík Ef litið er á skiptingu íbúðauppbyggingar fyrir landið má sjá að íbúðum í byggingu fjölgar mest í Reykjavík. Íbúðauppbygging hefur aukist um 11% frá síðustu talningu. Annars staðar á höfuðborgarsvæðinu er lítil breyting. Mest fjölgun hefur verið í Garðabæ eða 16% aukning í byggingu íbúða. Í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins stendur íbúðauppbygging í stað á milli talninga. Uppbygging í Árborg vegur þyngst en 32% aukning er í uppbyggingu íbúða í Hveragerði. Annars staðar á landsbyggðinni er uppbygging heldur stöðug eða í kringum 1.000 íbúðir. Á Akureyri fjölgar íbúðum hlutfallslega mest eða um 16%. Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Beint: Hver er staða íbúðauppbyggingar? Þrjú lúxushús á 33 milljónir Auknar heimildir til að hemja lóðabrask Leiguverð þarf að hækka töluvert Skoða hvort taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hann á aldrei að spila aftur Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Framkvæmdir sáttmálans fjármagnaðar Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Getur hæglega endað með gosi Starfsfólk sé ekki eitt með barni Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur Hátt í 100 björgunarsveitarmenn kallaðir út Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos „Ég er harmi slegin“ Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar Bílar innlyksa vegna snjóflóðs „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hann á aldrei að spila aftur Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Framkvæmdir sáttmálans fjármagnaðar Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefur gagnrýnt stríðið harðlega: „Er frábær maður“ Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Segir fjáraukalög hafa verið brotin Gerðu drónaárás skammt frá Finnlandi Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos „Ég er harmi slegin“ Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar Bílar innlyksa vegna snjóflóðs „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri